Virkja útflutningsvirkni

Tilgangur

Virkja útflutningshluta Reglu og reikningstegundina Útflutningsreikningur áður en útflutningsferlið er tekið í notkun.

Áður en þú byrjar

  • Notandinn þarf að hafa aðgang að Stjórnun og stillingum Sölukerfis.
  • Gakktu úr skugga um að rétt fyrirtæki sé valið áður en stillingum er breytt.

Skýringar á reitum og aðgerðum

Reitur eða aðgerð Skýring
Útflutningskerfi Virkjar útflutningshluta kerfisins.
Útflutningsreikningur Gerir reikningstegundina aðgengilega í skráningu reikninga.

Leiðbeiningar

Til að virkja útflutningsvirknina þarf að virkja eftirfarandi:

  1. Útflutningskerfi undir Kerfi fyrirtækis
  2. Útflutningsreikningur undir Tegundir í skráningu reikninga

Til að virkja Útflutningskerfi:

  1. Veldu Stjórnun
  2. Veldu Kerfi fyrirtækis
  1. Hakaðu við Útflutningskerfi
  2. Veldu Uppfæra 

Til að virkja Útflutningsreikning sem tegund í skráningu reikninga:

  1. Veldu Sölukerfi
  2. Veldu Tegundir í skráningu reikninga
  1. Hakaðu við Útflutningsreikningur
  2. Veldu Uppfæra 

Niðurstaða

Útflutningskerfið og reikningstegundin Útflutningsreikningur eru virk. Nú er hægt að stofna grunngögn fyrir útflutning.

Næsta skref: Stofna viðskiptavini fyrir útflutningsvirkni (2 af 5)

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Athugasemdir

0 comments

Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.

Ert þú með fleiri spurningar?
Senda fyrirspurn
Deildu ef þér fannst þetta gagnlegt.