Senda móttökusamkomulög í útflutningsvirkni

Tilgangur

Forskoða og senda móttökusamkomulög — pöntunina til framleiðandans — beint á þá framleiðendur og aðra viðtakendur sem tengjast útflutningsreikningi.

Móttökusamkomulögin eru mynduð út frá útflutningsreikningnum. Hver framleiðandi fær sitt samkomulag með þeim vörulínum reikningsins sem skráðar eru á hann, ásamt magni og einingaverði framleiðandans, og því þarf ekki að skrá pöntunina sérstaklega.

Áður en þú byrjar

  • Útflutningsreikningur eða sölusamkomulag þarf að vera til undir Listi útflutningsreikninga eða Geymdir útflutningsreikningar. Geymd skráning gildir sem sölusamkomulag, og reikningurinn þarf ekki að vera fullgerður til að hægt sé að senda móttökusamkomulög út frá honum.
  • Framleiðandi og einingaverð framleiðanda þurfa að vera skráð á vörulínur reikningsins.
  • Staðfestu að framleiðendur og netföng viðtakenda séu rétt áður en sent er.

Skýringar á reitum og aðgerðum

Reitur eða aðgerðSkýring
Umslagstákn með örOpnar aðgerðir til að forskoða og senda móttökusamkomulög.
ForskoðaSýnir móttökusamkomulag hvers framleiðanda áður en það er sent.
FramleiðandiVelur einn eða fleiri framleiðendur sem viðtakendur.
Fleiri netföngBætir öðrum viðtakendum við sendinguna.
SendaSendir valin móttökusamkomulög til valinna viðtakenda í einni aðgerð. Sendingin er pöntunin til framleiðandans.

Leiðbeiningar

Til að senda móttökusamkomulög:

  1. Veldu Sölukerfi / Skráning og viðhald / Reikningar og veldu Listi útflutningsreikninga eða Geymdir útflutningsreikningar
  2. Veldu umslagstáknið með örinni til að senda móttökusamkomulög

  3. Fyrir hvert móttökusamkomulag er hægt að:
    1. Forskoða móttökusamkomulag fyrir hvern framleiðanda á reikningnum
    2. Velja einn eða fleiri framleiðendur sem viðtakendur
    3. Skrá fleiri netföng
    4. Senda til eins eða fleiri viðtakenda í einni aðgerð

Dæmi um móttökusamkomulag:

Niðurstaða

Valin móttökusamkomulög eru send sem pöntun til þeirra framleiðenda og annarra netfanga sem voru valin. Þegar útflutningsreikningurinn á kaupandann hefur verið fullgerður er hægt að bóka sömu móttökusamkomulög sem innkaup frá framleiðendunum í fjárhagsbókhald.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Athugasemdir

0 comments

Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.

Ert þú með fleiri spurningar?
Senda fyrirspurn
Deildu ef þér fannst þetta gagnlegt.