Tilgangur
Stofna kaupanda og framleiðendur sem hægt er að velja á útflutningsreikningi og móttökusamkomulögum.
Áður en þú byrjar
- Útflutningsvirknin þarf að vera virk.
- Hafðu tiltækar grunnupplýsingar, mynt og þau auðkennisnúmer framleiðanda sem eiga við.
Skýringar á reitum og aðgerðum
| Reitur eða aðgerð | Skýring |
|---|---|
| Kennitala | Kennitala aðilans. Fyrir erlendan aðila má nota kennitölu sem byrjar á 99. |
| Mynt | Myntin sem viðskipti við aðilann eru skráð í. |
| Skilmálar viðskiptamanns | Viðskiptaskilmálar kaupandans. |
| Heimilisfang viðtakanda | Afhendingarheimilisfang kaupandans. |
| MSC-, FDA- og ASC-númer | Auðkennis- eða skráningarnúmer framleiðanda. Skráðu aðeins þau númer sem eiga við og staðfestu þau hjá framleiðandanum. |
| Númer framleiðanda | Númer sem auðkennir framleiðandann í útflutningsgögnum. |
Leiðbeiningar
Til að stofna viðskiptavini fyrir útflutningsvirkni:
- Veldu Sölukerfi / Skráning og Viðhald / Viðskiptamenn til að fara í viðskiptavinaviðmótið
- Til að stofna nýjan viðskiptavin, kaupanda eða framleiðanda:
- Veldu Stofna til að stofna nýjan viðskiptavin
- Sláðu inn kennitölu. Fyrir erlendan aðila má nota kennitölu sem byrjar á 99
- Sláðu inn nafn fyrirtækis
- Sláðu inn heimilisfang
- Veldu rétta mynt
-
Veldu Uppfæra
- Ef þú ert að stofna kaupanda:
- Veldu flipann Útflutningskerfi
- Sláðu inn Skilmála viðskiptamanns
- Sláðu inn Heimilisfang viðtakanda
-
Veldu Uppfæra
- Ef þú ert að stofna framleiðanda:
- Veldu flipann Útflutningskerfi
- Sláðu inn MSC nr. framleiðanda
- Sláðu inn Nafn framleiðanda
- Sláðu inn Númer framleiðanda
- Sláðu inn FDA nr. framleiðanda
- Sláðu inn ASC nr. framleiðanda
-
Veldu Uppfæra
Niðurstaða
Kaupandinn og framleiðendurnir eru tiltækir til vals þegar útflutningsreikningur er skráður.
Athugasemdir
0 comments