Tilgangur
Stofna útflutningsvöru og skrá réttar upplýsingar um verð, pakkningu og þyngd.
Áður en þú byrjar
- Vöruflokkur þarf að vera til.
- Birgir og upplýsingar um verð, mynt, VSK og pakkningu þurfa að liggja fyrir.
- Ákveddu hvort varan er pakkavara eða vigtarvara.
Skýringar á reitum og aðgerðum
| Reitur eða aðgerð | Skýring |
|---|---|
| Pakkavara | Vara í einsleitum pakkningum þar sem nettó- og brúttóþyngd pakkningar er þekkt. |
| Vigtarvara | Vara þar sem pakkningar geta verið misþungar. |
| Vörunúmer | Einkvæmt númer sem auðkennir vöruna. |
| Vöruheiti | Heiti sem auðkennir vöruna við skráningu. |
| Vöruflokkur | Flokkurinn sem varan tilheyrir. |
| Mynt og verð án VSK | Mynt vörunnar og einingaverð hennar án virðisaukaskatts. |
| VSK-flokkur | Virðisaukaskattsflokkur vörunnar. |
| Birgir | Birgirinn sem tengist vörunni. |
| Pökkunareining | Einingin sem lýsir pakkningu vörunnar. Fyrir vigtarvöru er valið Á ekki við. |
| Þyngdareining | Einingin sem þyngd vörunnar er skráð í. |
| Nettó- og brúttóþyngd | Þyngd vörunnar án umbúða og með umbúðum. |
| Brúttóþyngdarhlutfall (%) | Notað fyrir vigtarvöru þegar Pökkunareining er Á ekki við. |
Leiðbeiningar
Vörur í útflutningsvirkni geta verið tvenns konar:
-
Pakkavara sem pakkað er í einsleitar pakkningar
- Vara er stofnuð með pakkningu sem hefur nettó- og brúttóþyngd
- Hægt er að slá inn magn pakka og verð í vörulínu á reikning
-
Vigtarvara þar sem hver pakki hefur mismunandi vigt
- Pökkunareiningin Á ekki við er valin og brúttóþyngdarhlutfall (%) skráð
- Hægt er að slá inn magn pakka og verð í vörulínu á reikning
Til að stofna vörur:
- Veldu Sölukerfi / Skráning og Viðhald / Vörur til að fara í vöruviðmótið
- Til að stofna nýja vöru til útflutnings:
-
Veldu Ný vara
- Til að stofna vöru:
- Sláðu inn vörunúmer
- Sláðu inn vöruheiti
- Veldu vöruflokk
- Veldu mynt
- Veldu VSK flokk
- Sláðu inn verð án VSK
- Veldu að leyfa afslátt
- Veldu að leyfa að yfirrita verð
- Veldu birgja
- Veldu Vista
-
Til að stilla pakkavörur:
- Í vöruviðmótinu:
-
Veldu flipann Pakkning
-
- Á flipanum Pakkning:
- Veldu Pökkunareiningu
- Veldu Þyngdareiningu
- Sláðu inn Nettó þyngd pakkningar
- Sláðu inn Brúttó þyngd pakkningar
-
Veldu Vista
Til að stilla vigtarvörur:
- Í vöruviðmótinu:
-
Veldu flipann Pakkning
-
- Á flipanum Pakkning:
- Veldu Pökkunareiningu "Á ekki við"
- Veldu Þyngdareiningu
- Sláðu inn Brúttó þyngdarhlutfalls %
-
Veldu Vista
Niðurstaða
Varan er tiltæk til vals á útflutningsreikningi. Upplýsingar um pakkningu og þyngd eru vistaðar með vörunni.
Athugasemdir
0 comments