Til að setja upp vefverslunartengingu er farið í stillingarsíðuna undir Sölukerfi / Stjórnun / Vefverslun og valið að bæta við tengingu
Í þessa reiti fara inn aðgangslyklar og URL, þ.e. upplýsingar frá Shopify / WooCommerce / SalesCloud.
Shopify
API URL - Slóðin á bakendann á Shopify síðunni: https://[Þín vefverslun].myshopify.com
Hægt að sjá hvað [Þín vefverslun] á að vera á bakenda slóðinni
![]()
API lykilorð - Aðgangslykill frá Shopify. Hér eru upplýsingar: Shopify aðgangslykill.
WooCommerce
API URL - Slóðin á bakendann á WooCommerce síðunni: https://[Þín vefverslun]/wp-json/wc/v2/
Consumer key og secret - Aðgangslyklar frá WooCommerce. Hér eru upplýsingar: WooCommerce aðgangslykill.

SalesCloud
SalesCloud UUID - Aðgangslykill frá SalesCloud. Hér eru upplýsingar: SalesCloud aðgangslykill.

Notandi Reglu
Við mælum með að búa til sér notanda fyrir vefverslunartenginguna. Hér eru upplýsingar: Notandi vefverslunartengingar.
Notandinn sem er skráður hér verður skráður fyrir sjálfvirkum aðgerðum tengdum vefversluninni, eins og að bóka reikning.
Notandi og lykilorð Reglu - Í þessa reiti setur þú notandanafn og lykilorð Reglu. Þetta er gert til að búa til aðgangslykill fyrir Shopify til að geta skráð pantanir.
![]()
Stillingar
Það eina sem er eftir er að stilla hvernig vefverslunartengingin hagar sér.
Hér eru upplýsingar um stillingar: Stillingar fyrir vefverslun.

Athugasemdir
0 comments
Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.