Auðvelt er að senda endurgjöf í Reglu, tilkynna villu eða óska eftir virkni.
Innskráður notandi í vefviðmóti Reglu velur broskallinn neðst hægramegin í viðmóti.

Við það opnast val um að skrá:
- Almenna endurgjöf
- Tilkynna um villu
- Óska um virkni

Þegar gefin er endurgjöf er hægt að skrá:
- Stjörnugjöf
- Tölvupóst
- Almennar athugasemdir

Þegar villa er tilkynnt eða óskað er eftir virkni er hægt að skrá:
- Tölvupóst
- Titill / heiti á beiðni
- Lýsing á villunni / Lýsing á virkni
- Ýtarefni í formi skjáskots, myndbands eða viðhengis

Auðvelt er að slökkva á þessari virkni (t.d. ef táknið fyrir endurgjöfina er fyrir) með því að fara í "Handbækur og stillingar" og afhaka þar "Takki fyrir endurgjöf sýnilegur".
Athugasemdir
0 comments