Færslugjöld frá Landsbankanum - Uppsetning

Til þess að Regla geti sótt uppgjör færsluhirðis og bókað færslugjöld sjálfkrafa þarf að tengja Reglu við Landsbankann með API-lykli. Uppsetningin er í þremur hlutum:

  1. Stofna kerfisaðgang og sækja API-lykil í netbanka Landsbankans
  2. Skilgreina færsluhirði í Reglu
  3. Skrá API-lykilinn og sækja færslur

*ATH til að stofna kerfisaðgang þarf notandinn að hafa réttindi í netbanka fyrirtækja Landsbankans til að breyta aðgangsstýringum.

1. Stofna kerfisaðgang og sækja API-lykil hjá Landsbankanum

  1. Skráðu þig inn í netbanka fyrirtækja hjá Landsbankanum.
  2. Veldu Aðgangsstýring / Kerfisaðgangar í valmyndinni vinstra megin.

    Aðgangsstýring og Kerfisaðgangar í valmynd netbankans

  3. Smelltu á Stofna nýjan kerfisaðgang.

    Stofna nýjan kerfisaðgang

  4. Sláðu inn heiti og lýsingu - má vera hvað sem er, t.d.:

    • Heiti: Regla færslugjöld
    • Lýsing: Lykill fyrir Reglu til að sækja færslugjöld

    Smelltu á Stofna kerfisaðgang.

    Heiti og lýsing kerfisaðgangs

  5. Smelltu á Stilla aðgang.

    Stilla aðgang

  6. Hakaðu aðeins við Færsluhirðing og smelltu á Áfram.

    Færsluhirðing valin

  7. Veldu Tengja önnur búnaðarskilríki og smelltu á Áfram.

    Tengja önnur búnaðarskilríki

  8. Sláðu inn kennitölu Reglu ehf., 521208-0230, og smelltu á Staðfesta. Nafnið Regla ehf. á að birtast undir kennitölunni.

    Kennitala Reglu ehf. á skilríki

  9. Smelltu á punktana þrjá hægra megin við kerfisaðganginn og veldu Sýna API-lykil.
  10. Afritaðu API-lykilinn. Þú límir hann inn í Reglu í hluta 3.

*ATH API-lykillinn veitir aðgang að gögnum fyrirtækisins. Ekki senda hann í tölvupósti eða geyma hann þar sem aðrir sjá hann.

2. Skilgreina færsluhirði í Reglu

Undir Bókhald / Stjórnun / Skilgreining færsluhirða

Lýsing: Frjáls texti sem lýsir tengingunni, t.d. Færslugjöld Landsbankinn.

Bankatenging: Veldu Landsbankinn.

Samningsnúmer: Valkvætt. Ef reiturinn er auður er sótt uppgjör fyrir alla samninga fyrirtækisins. Sláðu inn samningsnúmer ef aðeins á að sækja uppgjör fyrir einn samning.

Bókhaldslykill færsluhirðis: Bókhaldslykill sem uppgjör færsluhirðis bókast á.

Færslugjöld: Bókhaldslykill sem færslugjöldin bókast á.

Smelltu á Skrá.

Skilgreining færsluhirða í Reglu

3. Skrá API-lykil og sækja færslur

Undir Bókhald / Skráning færsla / Sækja færslur í banka

  1. Veldu skilgreininguna sem þú stofnaðir í hluta 2 í fellilistanum Skilgreiningar.
  2. Veldu Dags. frá og Dags. til.
  3. Smelltu á Sækja færslur.
  4. Í fyrsta skipti birtist gluggi þar sem beðið er um API lykil. Límdu inn lykilinn úr hluta 1 og smelltu á Vista.

Gluggi fyrir API-lykil í Sækja færslur í banka

Eftir það sækir Regla færslurnar án þess að spyrja aftur um lykilinn.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Athugasemdir

0 comments

Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.

Ert þú með fleiri spurningar?
Senda fyrirspurn
Deildu ef þér fannst þetta gagnlegt.