Innflutningur úr dk gerir þér kleift að flytja gögn fyrirtækis úr dk yfir í Reglu: viðskiptamenn og lánardrottna, vörur, birgðastöðu, afrit eldri reikninga, upphafsstöður og bókhaldsfærslur. Þú ferð yfir allt áður en nokkuð er flutt inn og getur haldið áfram síðar með nýrra afriti.
Hvar er Innflutningur úr dk?
Innflutningur úr dk er undir Stjórnun > Gögn > Innflutningur úr dk. Hlutverk sem hafa aðgang að Innflutningsálfinum hafa einnig aðgang að Innflutningi úr dk, og hver hluti krefst þess kerfis í Reglu sem hann tilheyrir (sjá Gott að vita).
1. Hladdu upp afriti úr dk
Taktu afrit af fyrirtækinu í dk og vistaðu ZIP-skrána. Veldu dk sem Upprunakerfi, veldu skrána undir Veldu fyrirtækjaafrit úr dk og smelltu á Hlaða upp og yfirfara afrit.
Regla greinir afritið. Engin gögn eru flutt inn á meðan og þú mátt yfirgefa síðuna. Innflutningurinn bíður undir Vistaðir gagnaflutningar og þú opnar hann aftur með Opna innflutning.
2. Staðfestu fyrirtækin
Í skrefinu 1. Uppruni sérðu fyrirtækið Úr dk og fyrirtækið Inn í Reglu hlið við hlið. Berðu saman nöfn og kennitölur, hakaðu við Ég staðfesti að þetta séu rétt fyrirtæki og smelltu á Áfram í val gagna.
3. Veldu gögn til innflutnings
Í skrefinu 2. Val gagna velur þú hvað á að flytja inn. Efst sérðu á hvaða tímabili bókhaldsfærslurnar í afritinu eru.
- Viðskiptamenn og Lánardrottnar úr dk eru fluttir inn sem viðskiptamenn. Þeir sem þegar eru til í Reglu halda sínum upplýsingum. Þú getur sett þá í viðskiptamannaflokk.
- Virkar vörur eru fluttar inn með verði, kostnaðarverði, einingum og VSK. Vörur sem þegar eru til í Reglu með sama vörunúmeri halda sínum upplýsingum.
- Eldri reikningar sem óbreytanleg afrit eru geymdir sem söguleg afrit. Þeir eru hvorki gefnir út, sendir né bókaðir og hreyfa ekki birgðir.
- Birgðamagn og kostnaðarverðmæti úr afritinu eru flutt inn sem upphafsfærslur birgða á þeim degi sem skráður er í Dagsetning birgðaupphafs í Reglu.
Undir Innflutningur fjárhags velur þú hvaða bókhaldsgögn koma yfir:
- Ekki flytja inn fjárhag – hvorki bókhaldsfærslur né upphafsstöður.
- Allar tiltækar bókhaldsfærslur – allar færslur í afritinu til og með lokadegi.
- Upphafsstöður og færslur frá völdum degi – staða við upphaf valins dags og færslur frá þeim degi til lokadags.
- Aðeins upphafsstöður – aðeins stöður í upphafi valins dags.
- Færslur á völdu tímabili, án upphafsstaðna – þegar upphafsstöður eru þegar skráðar eða verða skráðar sérstaklega.
Veldu dagsetningar og smelltu á Vista og halda áfram.
4. Undirbúðu valin gögn
Í skrefinu 3. Undirbúningur eru verkefnin talin upp með stöðu: Tilbúið, Þarfnast yfirferðar eða Bíður. Opnaðu hvert verkefni sem þarfnast yfirferðar. Verkefni sem bíða sýna hvað þarf að klára fyrst. Val þitt vistast þegar þú færir þig á milli verkefna.
Í verkefninu Bókhaldslyklar tengir þú hvern dk-lykil við bókhaldslykil í Reglu. Regla leggur til tengingu og sýnir ástæðuna. Samþykktu tillögur eina í einu með Samþykkja eða allar í einu með Samþykkja allar tillögur, eða veldu annan lykil.
Í verkefninu Grunneiningar tengir þú hverja einingu úr dk við einingu í Reglu og smellir á Vista einingatengingar. Í verkefninu Birgðir berðu birgðageymslur, magn og kostnaðarverðmæti saman við dk, hakar við staðfestinguna og smellir á Vista yfirferð birgða.
Í verkefninu Upphafsstöður reiknar Regla stöðurnar úr dk. Berðu fjárhæðirnar saman við dk, hakaðu við staðfestinguna og smelltu á Vista og yfirfara fjárhæðir.
Þegar öll verkefni eru með stöðuna Tilbúið smellir þú á Áfram í staðfestingu.
5. Samþykktu innflutninginn
Í skrefinu 4. Staðfesting sérðu samantekt á því sem verður flutt inn. Notaðu tenglana til að breyta fyrra vali. Hakaðu við Ég hef yfirfarið þetta val og samþykki innflutninginn og smelltu á Hefja innflutning.
Innflutningurinn keyrir í bakgrunni og staðan uppfærist sjálfkrafa. Þú mátt loka síðunni og koma aftur undir Vistaðir gagnaflutningar.
6. Niðurstaða
Þegar innflutningi lýkur sérðu hve mikið var flutt inn af hverju. Upphafsstöður og bókhaldsfærslur fara í dagbækur til yfirferðar. Smelltu á Fara á yfirlit bókhalds til að skoða bókhaldið eða á Leita að reikningum til að skoða reikningsafritin.
Ef eitthvað þarf að laga birtist það undir Til leiðréttingar, til dæmis fylgiskjal á tímabili sem er lokað í Reglu. Lagaðu atriðið í Reglu og smelltu á Leiðrétt.
Á meðan afritið er geymt getur þú bætt við gögnum með Halda áfram með innflutning. Hlutar sem þegar hafa verið fluttir inn eru merktir og ekki valdir sjálfkrafa.
Gott að vita
- Kennitölur þurfa að stemma. Ef kennitala fyrirtækisins í dk er ekki sú sama og í Reglu eru viðskiptamenn, lánardrottnar, vörur og birgðir flutt inn, en ekki bókhaldsfærslur, upphafsstöður eða eldri reikningar.
- Hver hluti krefst kerfis í Reglu, bæði hjá fyrirtækinu og notandanum: lánardrottnar bókhalds- eða innkaupakerfis, vörur sölu- eða birgðakerfis, birgðir birgðakerfis, reikningsafrit sölukerfis og bókhald bókhaldskerfis.
- Afritið er geymt í 7 daga. Það inniheldur viðkvæmar upplýsingar og því er eytt 7 dögum eftir að því var hlaðið upp eða það var síðast notað. Til að halda áfram eftir það hleður þú því upp aftur.
- Ekkert er flutt inn fyrr en þú smellir á Hefja innflutning. Undantekning: bókhaldslykill eða VSK-flokkur sem þú stofnar í undirbúningnum vistast strax.
- Lokuð tímabil. Fylgiskjal dagsett á tímabili sem er lokað í Reglu er ekki bókað og birtist undir Til leiðréttingar.
- Fyrsti dagur í Reglu festist þegar upphafsstöður eða bókhaldsfærslur hafa verið fluttar inn. Síðari innflutningur úr sama dk-fyrirtæki notar sömu dagsetningu.
- Ekki flutt inn: verkefni, laun, opnar kröfur og óútgefin skjöl. Einingar eru ekki stofnaðar; tengja þarf þær við einingar sem til eru í Reglu.
- Eyða innflutningi. Með Eyða undir Vistaðir gagnaflutningar er afritinu úr dk eytt. Gögn sem þegar voru flutt inn haldast óbreytt í Reglu.
Sjá einnig Flytja inn skrá með Innflutningsálfi og Upphafsstöður skulda og eigna þegar byrjað er í Reglu.
Athugasemdir
0 comments