Stofna nýtt fyrirtæki í fyrirtækjagátt
Þessar leiðbeiningar sýna hvernig bæta á nýju fyrirtæki inn í fyrirtækjagáttina.
- Fyrst þarf að velja einn notanda með admin-réttindi í fyrirtækinu og láta forritara keyra þessar skipanir á SQL í PROD.
Ath. skref 1 þarf að gera í samráði við hugbúnaðarsvið Reglu.
EXEC [dbo].[spc_FIBS_Employee_AuthorizationRole_Create] @EmployeeID = <EMPID>, @SystemID = 39, @Role='ADMIN' EXEC [dbo].[spc_FIBS_Employee_AuthorizationRole_Create] @EmployeeID = <EMPID>, @SystemID = 39, @Role='Manager' EXEC [dbo].[spc_FIBS_Employee_AuthorizationRole_Create] @EmployeeID = <EMPID>, @SystemID = 39, @Role='ROLEASSIGNER'
Þetta veitir þessum notanda aðgang að Fyrirtækjagáttinni og möguleika á að úthluta réttindum til annarra notenda.
- Næst þarf að skrá sig inn í fyrirtækið með þessum aðila sem hefur stjórnendaréttindi og fara í Stjórnun → Kerfi fyrirtækis. Þar þarf að haka við Fyrirtækjagátt og ýta á Uppfæra.
Síðan þarf að endurræsa síðuna og þá á nýr valmöguleiki, Fyrirtækjagátt, að birtast. - Farið í Fyrirtækjagátt → Fyrirtækjayfirlit. Þar er hægt að opna hlekk færir þig yfir á app.regla.is/COMPANYPORTAL/CompanyPortalMainPage.
- Þegar Fyrirtækjagáttin er opnuð í fyrsta skipti sérðu öll fyrirtæki sem notandinn er með í umsjón. Þar er dálkur sem heitir Innskráning möguleg og sýnir hvort innskráður notandi getur skráð sig inn í viðkomandi fyrirtæki eða ekki.
Athugið: Næstu skref sýna hvernig veita má notanda réttindi til að skrá sig inn í annað fyrirtæki í gegnum Fyrirtækjagáttina.
- Í Classic-kerfi Reglu þarf að fara í Stjórnun → Viðhaldsskrár → Hlutverk og veita notandanum hlutverk í Fyrirtækjayfirliti.
- Næst Í sýnu fyrirtæki þarf síðan að finna notandann, ganga úr skugga um að hann sé skráður með rétta kennitölu og að hakað sé við Notandi fyrir bókhaldsþjónustu.
Næst þarf að skrá sig inn í fyrirtækið sem notandinn á að hafa aðgang að og stofna hann þar með réttri kennitölu, haka við Notandi fyrir bókhaldsþjónustu og úthluta honum réttum réttindum í kerfinu.
- Næst ferðu í Fyrirtækjagáttina, opnar Starfsmannayfirlit, finnur viðkomandi starfsmann, hægrismellir á hann og velur Uppfæra réttindi. Þá opnast gluggi þar sem veita þarf notandanum deildarstjóraréttindi í Fyrirtækjagáttinni. Neðar á síðunni birtist listi yfir öll fyrirtæki sem notandinn hefur aðgang að, þar sem hægt er að opna eða loka aðgangi eftir þörfum.
- Næst, þegar notandinn skráir sig inn í Fyrirtækjagáttina með sínum aðgangi, sér hann að Innskráning er möguleg. Hann getur þá annaðhvort smellt á dálkana Nafn, Kennitala, VSK-skil eða Launakeyrsla til að skrá sig inn í viðkomandi fyrirtæki, eða hægrismellt á fyrirtækið og valið Skrá inn.
Athugasemdir
0 comments