Ég þarf að flytja gögn inn í kerfið
Hægt er að flytja inn gögn í Reglu með einföldum innlestri á skrám.
Þessi aðgerð er notuð t.d. þegar verið er að koma gögnum inn í Reglu úr öðrum kerfum.
Þau gögn sem eru oftast flutt inn eru viðskiptamannaskrá, vörur, birgðir, strikamerki o.fl.
Nota má sniðmát sem til eru undir Handbækur og stillingar fyrir innlestur inn í Reglu en það er líka hægt að byggja upp sitt eigið Excel skjal.
ATH! Það er mjög mikilvægt að færa gögnin rétt inn í sniðmátin og vista í tölvunni, áður en skráin er lesin inn.
Undir Stjórnun / Viðhald skráa / Flytja inn skrá er boðið uppá mismunandi gagnainnflutninga á CSV formi.
Hægt er að breyta Excel skjali auðveldlega í CSV skrá með því að opna Excel skjalið og vista það sem CSV skrá.
Það er gert í Excel með því að smella á "File / Save As" og þar undir velja CSV í glugganum "Save as type".
Hægt er að finna fleiri upplýsingar og leiðbeiningar hér: Flytja inn skrá