Með auka vöruflokki og vörutaxta setur þú tímabundinn afslátt á hóp af vörum sem þú velur sjálf/ur, til dæmis fyrir Black Friday, útsölu eða tilboðsdaga. Vörurnar mega vera í hvaða vöruflokkum sem er: þú setur þær allar á einn auka vöruflokk í fjöldabreytingu og stofnar svo einn vörutaxta sem gefur afslátt á þann flokk á tilteknu tímabili. Afslátturinn byrjar og hættir sjálfkrafa, og þú þarft hvorki að breyta verðum á vörunum fyrir né eftir tilboðið.
Í dæminu hér að neðan fá stærri garðhúsgögn, þau sem kosta yfir 50.000 kr., 15% afslátt yfir Black Friday-helgina, frá 27. til og með 30. nóvember. Þetta er dæmigert tilfelli þar sem vöruflokkur einn dugar ekki: ekki eiga öll garðhúsgögn að vera á tilboði, aðeins þau dýrari, og þú gætir viljað bæta við vörum úr öðrum flokkum.
Hvernig þetta virkar
- Vöruflokkur er aðalflokkur vörunnar. Honum er ekki breytt hér; varan heldur sínum vöruflokki.
- Auka vöruflokkur er viðbótarflokkur sem þú tengir vörunni. Hann hefur engin áhrif á verð einn og sér, heldur merkir hann vörurnar sem eiga að vera á tilboði.
- Vörutaxti segir til um afsláttinn: hversu mikill hann er, á hvaða vöruflokk hann leggst og á hvaða tímabili hann gildir. Vörutaxti á vöruflokk gildir líka um vörur sem eru á þeim flokki sem auka vöruflokki.
Hvar er þetta?
Þú notar þrjár skjámyndir, allar undir Sölukerfi > Skráning og viðhald:
- Vöruflokkar — til að stofna flokkinn fyrir tilboðið.
- Vörur — til að velja vörurnar og setja þær á auka vöruflokkinn í fjöldabreytingu. Sé vörulistinn hjá þér í eldra útliti smellirðu á Skipta yfir í nýja útlitið efst á síðunni.
- Vörutaxtar — til að stofna afsláttinn sjálfan.
1. Stofnaðu vöruflokk fyrir tilboðið
Farðu í Sölukerfi > Skráning og viðhald > Vöruflokkar. Í Vöruflokkur: slærðu inn stutt númer eða kóða, til dæmis BF15, og í Heiti vöruflokks: heitið Black Friday 15%. Smelltu á Skrá. Hina reitina þarftu ekki að fylla út.
Gott er að hafa bæði tilefnið og afsláttinn í heitinu. Flokkurinn birtist síðar í fellilistum sem númer og heiti saman, hér BF15-Black Friday 15%, svo þú sérð strax hvaða tilboð vara tilheyrir. Nánar um vöruflokka í greininni Vöruflokkar.
2. Finndu og veldu vörurnar
Farðu í Sölukerfi > Skráning og viðhald > Vörur. Þú getur hakað við vörur eina og eina, en fljótlegast er að sía listann fyrst þannig að aðeins tilboðsvörurnar standi eftir.
Í leitarreitnum getur þú síað eftir dálkum með Dálkur:gildi og sameinað fleiri en eitt skilyrði. Í dæminu skrifum við Vöruflokkur:"Garðhúsgögn og pottar" Verð:>50000 og ýtum á Enter. Hvert skilyrði birtist þá sem merki fyrir framan leitarreitinn, og þú fjarlægir það með krossinum.
- Settu gildi með bilum í gæsalappir, eins og "Garðhúsgögn og pottar".
- Þú getur síað eftir hvaða dálki sem er, til dæmis Birgir:, Vara: eða Vefverslun:Nei. Tab klárar dálkaheitið fyrir þig.
- Verð: leitar í öllum verðdálkum og tekur líka > (meira en), < (minna en) og ! (ekki).
- Síunin virkar aðeins þegar öll leitin er á forminu Dálkur:gildi.
Til að sjá aðeins þá dálka sem skipta máli smellirðu á dálkahnappinn hægra megin við leitarreitinn og felur hina með augntákninu. Hér sýnum við aðeins Vörunúmer, Vara, Vöruflokkur, Birgir og verðin, svo ekki þurfi að fletta til hliðar. Regla man valið næst þegar þú opnar listann.
Hakaðu svo í kassann í dálkahausnum til að velja allar vörurnar sem sían skilaði. Röð af hnöppum birtist fyrir ofan listann og sýnir hversu margar vörur eru valdar. Smelltu á Fjöldabreyting; talan í sviga er fjöldi valinna vara.
Ný leit hreinsar valið, svo síaðu fyrst og veldu svo.
3. Settu vörurnar á auka vöruflokkinn
Vörurnar opnast í töflu. Dálkurinn Auka vöruflokkur er sjálfgefið við hliðina á Vöruflokkur. Sjáir þú hann ekki smellirðu á Breyta dálkum og kveikir á honum.
Smelltu á reitinn Auka vöruflokkur í efstu röðinni og ýttu á Enter. Fellilisti með öllum vöruflokkum opnast; skrifaðu hluta af heitinu, til dæmis black, til að finna flokkinn hraðar og veldu BF15-Black Friday 15%.
Smelltu svo aftur á reitinn og dragðu bláa punktinn í neðra hægra horni hans niður töfluna. Þá fær hver röð sama flokk. Breyttu reitirnir verða gulmerktir og hnappurinn Vista sýnir hversu margar vörur hafa óvistaðar breytingar.
Dragðu alltaf úr reit sem hefur flokkinn valinn. Dragir þú úr tómum reit virðast reitirnir fyrir neðan tæmast, en auka vöruflokkur er ekki fjarlægður af vörunum við vistun.
Smelltu á Vista. Ekkert er vistað fyrr en þú smellir. Gangi vistunin upp birtast skilaboðin Varan hefur verið uppfærð. neðst á skjánum. Vörurnar eru nú merktar fyrir tilboðið, en verðið á þeim hefur ekki breyst. Það gerir vörutaxtinn í næsta skrefi.
4. Stofnaðu vörutaxtann
Farðu í Sölukerfi > Skráning og viðhald > Vörutaxtar og smelltu á Stofna. Fylltu út:
- Tegund: veldu Tímabil (sjálfgefið er Vikudagar).
- Frá: og Til: fyrsti og síðasti dagur tilboðsins, hér 27.11.2026 og 30.11.2026. Hvorum degi fylgir tími, sjálfgefið 00:00. Settu tímann við Til: á 23 : 59 svo að allur síðasti dagurinn sé örugglega með. Í listanum birtist lokatíminn þá sem 30.11.2026 23:59:59.
- Vörur: veldu Vörufl: og svo BF15-Black Friday 15% í fellilistanum. Sjálfgefið er Allar vörur, sem myndi setja afsláttinn á allar vörur fyrirtækisins.
- Deild — láttu - Allir/Allar - standa svo afslátturinn gildi í öllum deildum, eða veldu eina deild.
- Viðskiptamenn — láttu Allir viðsk.m. standa svo afslátturinn gildi fyrir alla viðskiptavini.
- Verð: veldu Prósenta, sláðu 15 í reitinn Prósenta: og hafðu Afsláttur valið (ekki Álagning).
- Lýsing — til dæmis Black Friday 15%, svo auðvelt sé að finna taxtann aftur.
Smelltu á Skrá. Regla staðfestir með skilaboðunum Vörutaxti var búinn til. og taxtinn birtist í listanum með tímabilinu og prósentunni.
5. Athugaðu að afslátturinn nái til varanna
Í Vörutaxtar getur þú séð hvaða taxtar hafa áhrif á tiltekna vöru. Sláðu vörunúmer einnar af vörunum, hér TEAK6, í reitinn Vara/-flokkur, hakaðu í Sýna alla vörutaxta sem hafa áhrif á vörunúmer og smelltu á Leita.
Black Friday-taxtinn birtist þá, og ef þú flettir töflunni til hægri stendur í dálkinum Gildir vegna til dæmis Aukavöruflokkur BF15. Þannig veistu að varan fær afsláttinn í gegnum auka vöruflokkinn. Dálkurinn Virkur núna sýnir Nei þar til tímabilið hefst.
Gott að vita
- Afslátturinn hættir sjálfkrafa. Þegar tímabilinu lýkur hættir vörutaxtinn að gilda og vörurnar fara aftur á fullt verð.
- Liðin tilboð hverfa úr listanum. Hakið Ekki sýna vörutaxta hvar tímabil er liðið er sjálfgefið á í Vörutaxtar. Taktu hakið af til að sjá tilboð sem er lokið.
- Breyta eða stöðva tilboðið. Smelltu á línu taxtans í listanum til að breyta honum, til dæmis til að lengja tímabilið. Til að stöðva tilboðið strax smellirðu á græna stöðutáknið í línunni og gerir taxtann óvirkan.
- Vörurnar verða áfram á auka vöruflokknum eftir að tilboðinu lýkur. Það hefur engin áhrif á verð, en notir þú sama flokk fyrir næsta tilboð eru vörurnar frá síðasta tilboði enn í honum. Stofnaðu frekar nýjan flokk fyrir hvert tilboð. Auka vöruflokka vörunnar sérð þú í flipanum Flokkun þegar þú opnar hana.
- Fjöldabreyting sýnir aðeins fyrsta auka vöruflokkinn. Vara getur verið á fleiri en einum auka vöruflokki. Í fjöldabreytingu sérð og breytir þú aðeins þeim fyrsta; fjöldi hinna birtist aftan við heitið, til dæmis +2. Sé vara þegar á auka vöruflokki, til dæmis frá fyrra tilboði, kemur nýi flokkurinn í stað þess fyrsta.
- Auka vöruflokkur er ekki fjarlægður í fjöldabreytingu. Fellilistinn hefur ekkert autt gildi, svo þú getur skipt um flokk en ekki tekið hann af. Það gerir þú á vörunni sjálfri: opnaðu hana, farðu í flipann Flokkun og smelltu á ruslafötuna við flokkinn.
- Undirvörur fylgja yfirvörunni. Undirvörum er ekki breytt í dálkinum Auka vöruflokkur, en þær fá afsláttinn í gegnum yfirvöruna sína.
Sjá einnig Fjöldabreyting á vörum, Vörutaxtar og Auka vöruflokkar.
Athugasemdir
0 comments
Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.