Sjóðsstreymi sýnir hvernig handbært fé fyrirtækisins breyttist á tímabili: hvað kom frá rekstri, hvað fór í fjárfestingar og hvaða áhrif fjármögnun hafði. Það er sett upp eftir óbeinu aðferðinni, byrjar á hagnaði ársins og stemmir handbært fé í lok tímabilsins af við efnahagsreikninginn. Þú keyrir það, prentar og sendir á sama hátt og efnahags- og rekstrarreikning.
Hvar er sjóðsstreymið?
Sjóðsstreymi er þriðja tegund skilgreiningar, við hlið efnahags- og rekstrarreiknings. Staðlaða skilgreiningin Sjóðsstreymi fylgir fyrirtækinu þínu.
- Uppsetning er undir Bókhald > Viðhald skráa > Efnahagur/rekstur.
- Skýrslan er keyrð undir Bókhald > Uppgjörsvinnslur > Efnahagur/rekstur, á sama stað og efnahags- og rekstrarreikningur.
1. Opnaðu skilgreininguna
Farðu í Bókhald > Viðhald skráa > Efnahagur/rekstur og veldu Sjóðsstreymi í fellilistanum undir Skilgreining. Tegund reiknings er Sjóðsstreymi.
Skilgreiningin skiptist í þrjá hluta, Rekstrarhreyfingar, Fjárfestingarhreyfingar og Fjármögnunarhreyfingar, hvern með sína samtölu. Neðst eru Hækkun (lækkun) á handbæru fé, Handbært fé í ársbyrjun og Handbært fé í árslok.
2. Grunnur og formerki
Í sjóðsstreymi hefur hver lína tvo dálka sem efnahags- og rekstrarreikningur hafa ekki.
- Grunnur segir hvaða upphæð línan tekur af lyklunum sínum: Breyting er hreyfingin á tímabilinu, Staða í upphafi er staðan í upphafi tímabilsins og Staða er staðan í lok þess.
- Formerki - snýr upphæðinni við áður en samtölur eru reiknaðar. Þannig birtist hækkun á eign, til dæmis viðskiptakröfum, sem útstreymi og hækkun á skuld sem innstreymi.
Í stöðluðu skilgreiningunni eru línurnar í hlutunum þremur með grunninn Breyting og formerkið -. Línurnar tvær fyrir handbært fé eru með formerkið +. Þú þarft yfirleitt ekki að breyta þessu.
3. Tengdu bókhaldslykla við línurnar
Línurnar Hagnaður (tap) ársins, Handbært fé í ársbyrjun og Handbært fé í árslok sækja upphæðir sínar beint í rekstrarreikning og efnahagsreikning fyrirtækisins og eru í flestum fyrirtækjum þegar tengdar. Hinar línurnar þarftu að tengja við þína bókhaldslykla.
Smelltu á táknið í fyrsta dálki línunnar. Í Val á bókhaldslyklum velurðu lyklana í listanum Bókhaldslyklar og smellir á Velja >. Þeir færast þá í Valdir bókhaldslyklar. Með < Sleppa tekurðu lykil af línunni. Smelltu á Staðfesta til að vista. Talan við táknið sýnir svo hve margir lyklar eru tengdir línunni.
Sjálfgefið er hakað í Ótengdir, svo listinn sýnir aðeins lykla sem eru ekki tengdir annarri línu.
Í listanum eru bæði efnahags- og rekstrarlyklar. Tengdu línurnar við sömu lykla og standa á samsvarandi línum efnahagsreikningsins:
- Viðskiptakröfur, Vörubirgðir, Aðrar skammtímakröfur, Viðskiptaskuldir og Aðrar skammtímaskuldir: lyklarnir sem bera sama heiti í efnahagsreikningnum.
- Varanlegir rekstrarfjármunir og Eignarhlutar í öðrum félögum: eignalyklarnir.
- Langtímalán og Skammtímalán: lánin, þar með taldar skammtímaskuldir við lánastofnanir.
- Frestaður tekjuskattur, breyting: tekjuskattsskuldbindingin.
- Arður til hluthafa: lykillinn sem greiddur arður er færður á.
- Afskriftir: aðeins lyklar fyrir uppsafnaðar afskriftir. Ef afskriftir eru færðar beint á eignalyklana skilurðu línuna eftir tóma, því breytingin á Varanlegum rekstrarfjármunum inniheldur þær þá þegar. Tengdu aldrei gjaldalykla afskrifta hér, þá eru afskriftirnar taldar tvisvar.
Tengdu ekki banka- eða sjóðslykla við neina af þessum línum. Handbært fé kemur inn í gegnum línurnar Handbært fé í ársbyrjun og Handbært fé í árslok. Hver lykill getur aðeins verið tengdur einni línu í skilgreiningunni.
4. Keyrðu sjóðsstreymið
Farðu í Bókhald > Uppgjörsvinnslur > Efnahagur/rekstur og veldu Sjóðsstreymi í Skilgreining. Settu inn Dagsetning frá og til og samanburðartímabil í Samanburðar dags. frá og til, til dæmis sama tímabil í fyrra. Smelltu á Keyra fyrirspurn. Niðurstaðan opnast í nýjum glugga.
Settu Dagsetning frá á fyrsta dag reikningsársins. Dagsetning til má vera hvaða dagur sem er á sama reikningsári, til dæmis lok síðasta mánaðar ef þú vilt sjá sjóðsstreymi ársins til þessa. Sundurliðun, deildir og útflutningur í PDF, Excel og tölvupóst virka eins og fyrir efnahags- og rekstrarreikning.
5. Athugaðu afstemminguna
Þegar sjóðsstreymið er keyrt fyrir allt fyrirtækið ber Regla saman handbært fé í ársbyrjun að viðbættri hækkun eða lækkun á tímabilinu við handbært fé í árslok. Smávægilegur mismunur vegna námundunar er hunsaður. Ef þetta stemmir ekki birtist ein af þessum athugasemdum efst í niðurstöðunni:
- Sjóðsstreymið er ekki fullstillt: engir lyklar eru tengdir við rekstrar-, fjárfestingar- eða fjármögnunarliði. Þú hefur ekki enn tengt lykla við línurnar. Farðu í skref 3.
- Sjóðsstreymið stemmir ekki. Mismunur: … Algengustu ástæðurnar eru að efnahagslykill með hreyfingu á tímabilinu er ekki tengdur neinni línu, að banka- eða sjóðslykill er tengdur við línu í hlutunum þremur, eða að gjaldalykill afskrifta er tengdur við Afskriftir. Berðu tengdu lyklana saman við efnahagsreikninginn.
Gott að vita
- Deildir: ef þú velur deild sýna hlutarnir þrír aðeins hreyfingar deildarinnar, en Handbært fé í ársbyrjun og Handbært fé í árslok eru alltaf fyrir allt fyrirtækið. Þá birtist athugasemdin Sjóðsstöður eru fyrir allt félagið, ekki valda deild. og afstemmingin er ekki gerð.
- Lyklar sem passa ekki í neina línu: staðlaða skilgreiningin hefur til dæmis enga línu fyrir óefnislegar eignir eða hlutafé. Ef hreyfing er á slíkum efnahagslykli skaltu bæta við línu af tegundinni Lína í þann hluta sem á við, með grunninn Breyting og formerkið -, og tengja lykilinn við hana. Raðnúmer hennar þarf að vera innan bils samtölulínu hlutans, annars er hún ekki tekin með í samtöluna.
- Óbein aðferð: sjóðsstreymið byrjar á hagnaði ársins og leiðréttir hann fyrir breytingum á efnahagsliðum. Bein aðferð er ekki í boði.
Sjá einnig Skilgreiningar fyrir Efnahags - og Rekstrarreikning og Efnahagur/Rekstur.
Athugasemdir
0 comments
Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.