Gervigreindaraðgangur gerir þér kleift að tengja gervigreindaraðstoðarmann eins og Claude við Reglu, svo hann geti svarað spurningum um bókhald og rekstur fyrirtækisins út frá gögnunum þínum.
Hvar er gervigreindaraðgangur?
Gervigreindaraðgangur er undir Stjórnun > Kerfi og tengingar > Gervigreindaraðgangur. Aðeins stjórnendur fyrirtækisins geta kveikt og slökkt á honum og séð notkunina.
1. Kveiktu á gervigreindaraðgangi
Smelltu á Kveikja…. Skilmálarnir birtast: verð, hvert gögnin fara og hvernig þú stýrir aðganginum.
Hakaðu við Ég samþykki skilmálana fyrir hönd fyrirtækisins og smelltu á Samþykkja og kveikja.
Þjónustan er án gjalds fyrstu 30 dagana frá fyrstu notkun. Eftir það greiðir fyrirtækið mánaðargjald samkvæmt verðskrá Reglu fyrir hvern almanaksmánuð sem það notar þjónustuna.
2. Veldu hvaða notendur hafa aðgang
Allir notendur hafa aðgang sjálfgefið. Á flipanum Notendur slekkurðu á aðgangi einstakra notenda með rofanum í dálknum Aðgangur. Breyting tekur gildi við næstu fyrirspurn notandans.
3. Tengdu Claude við Reglu
Hver notandi tengir sinn eigin aðstoðarmann. Í Claude (claude.ai):
- Opnaðu Settings > Customize > Connectors, smelltu á Add og veldu Add custom connector.
- Skráðu Regla í Name og https://mcp.regla.is/mcp í MCP server URL og smelltu á Continue.
- Undir OAuth client velurðu Use your own OAuth client og skráir regla-mcp-claude-ai. Ekkert leyniorð (client secret) þarf.
- Smelltu á Add, svo Connect, og skráðu þig inn með Reglu-notandanum þínum.
Tengingin birtist líka í Claude-appinu í tölvu og síma á sama aðgangi. Þú getur nú spurt til dæmis: Hver var salan í síðasta mánuði?
Í Claude Code keyrirðu þessa skipun í skipanalínunni:
claude mcp add --transport http --scope user regla https://mcp.regla.is/mcp --client-id regla-mcp-claude-code --callback-port 33418
Opnaðu síðan Claude Code, skrifaðu /mcp, veldu regla og síðan Authenticate. Innskráningarsíða Reglu opnast í vafranum og þú skráir þig inn með Reglu-notandanum þínum.
4. Fylgstu með notkuninni
Á flipanum Notkunarskrá sérðu hverja fyrirspurn: Tími, Notandi, Aðgerð og Niðurstaða. Þú getur síað eftir tímabili með reitunum Frá og Til og eftir notanda í listanum Allir notendur.
Gott að vita
- Hvaða forrit er hægt að tengja — í dag Claude (claude.ai og Claude-appið í tölvu og síma) og Claude Code. Önnur forrit, til dæmis Gemini, Mistral eða Copilot, er ekki hægt að tengja við Reglu enn sem komið er.
- Sami aðgangur og notandinn — aðstoðarmaðurinn sér aðeins það sem notandinn hefur aðgang að í Reglu.
- Gögnin fara til þjónustunnar sem notandinn velur — þau eru unnin þar samkvæmt skilmálum hennar.
- Slökkt fyrir allt fyrirtækið — smelltu á Slökkva. Enginn notandi getur þá notað aðstoðarmann með Reglu fyrr en kveikt er aftur. Stillingar einstakra notenda haldast.
- Nýir skilmálar — ef skilmálarnir breytast birtist tilkynning á síðunni með hnappnum Skoða nýja skilmála…. Aðgangurinn helst opinn á meðan.
- Notkunarskráin er hreinsuð öðru hverju — eldri notkun sést þá ekki lengur.
Sjá einnig Kerfi fyrirtækis.
Athugasemdir
0 comments
Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.