Þú getur flutt þig úr DK yfir í Reglu á tvo vegu. Þú getur gert það sjálf(ur) með leiðbeiningunum hér fyrir neðan, og þjónustuver Reglu aðstoðar ef þú þarft.
Tvær leiðir til að flytja gögnin
Leið 1: Innflutningur úr dk (ZIP-afrit) – einfaldast
Innflutningur úr dk er sérstaklega hannaður til að flytja fyrirtæki úr DK með einföldum hætti. Þú tekur afrit af fyrirtækinu í DK, vistar ZIP-skrána og hleður henni upp undir Stjórnun › Gögn › Innflutningur úr dk. Regla les afritið og þú ferð yfir allt áður en nokkuð er flutt inn.
- Flutt inn: viðskiptamenn og lánardrottnar, vörur, birgðastaða, afrit eldri reikninga, upphafsstöður og bókhaldsfærslur.
- Ekki flutt inn: verkefni, laun, opnar kröfur og óútgefin skjöl.
- Kennitala fyrirtækisins þarf að vera sú sama í DK og í Reglu til að bókhaldsfærslur, upphafsstöður og eldri reikningar komi með.
Með þessari leið kemur innflutningurinn í stað skrefa 1, 3 og 4 hér fyrir neðan. Hin skrefin eiga við á sama hátt. Leiðbeiningar skref fyrir skref: Innflutningur úr dk.
Leið 2: Sækja gögn úr DK og lesa inn með Innflutningsálfinum
Þú sækir aðalbók og lista yfir skuldunauta, vörur og lánardrottna úr DK, stofnar aðgang í Reglu og lest gögnin inn með Innflutningsálfinum. Skrefin eru hér fyrir neðan.
Hvenær er best að skipta?
Einfaldast er að skipta í byrjun fjárhagsárs. Það gengur samt líka vel í lok VSK-tímabils eða mánaðar, því upphafsstöður í Reglu eru miðaðar við lokadag tímabilsins í gamla kerfinu.
Flutningurinn sjálfur tekur stuttan tíma. Með Innflutningsálfinum lestu Excel-skrár beint inn í Reglu og ert fljótt komin(n) af stað.
1. Sæktu gögnin úr DK
| Gögn | Hvar í DK |
|---|---|
| Stöður á fjárhagslyklum (aðalbók) | Skýrslur > Aðalbók. Veldu lokadag tímabilsins |
| Viðskiptavinir (skuldunautar) | Skuldunautar > Listi skuldunauta |
| Vörur | Birgðir > Vörur og vörulisti |
| Lánardrottnar | Lánardrottnar > Listi lánardrottna |
Valmyndir geta verið aðeins mismunandi eftir útgáfu DK.
Hafðu líka tilbúið:
- Stöðu hvers skuldunauts og lánardrottins á lokadegi tímabilsins, eftir kennitölu
- Veflykla fyrir staðgreiðslu og virðisaukaskatt hjá Skattinum
- Aðgang að lífeyrissjóðum og stéttarfélögum ef þú greiðir laun
- Afrit af reikningum og launaseðlum úr DK til að eiga
2. Stofnaðu aðgang í Reglu
Farðu á regla.is og smelltu á Nýskráning. Fylltu inn upplýsingar um fyrirtækið og veldu þær einingar sem þú þarft: bókhald, sölukerfi, laun og annað. Reikningur myndast aðeins fyrir einingar sem eru notaðar.
Sjá nánar: Fyrstu skrefin með Reglu
3. Lestu inn viðskiptavini, vörur og lánardrottna
Notaðu Innflutningsálfinn undir Stjórnun > Viðhald skráa > Innflutningsálfur. Hann les Excel- og CSV-skrár beint, án þess að þurfa sniðmát:
- Veldu tegund gagna, t.d. viðskiptavini eða vörur.
- Hladdu upp skránni úr DK.
- Paraðu saman dálkana í skránni við reitina í Reglu.
- Villuleitaðu og veldu Flytja inn.
Sjá nánar: Flytja inn skrá með Innflutningsálfi
4. Færðu upphafsstöður
Settu inn stöður á skuldum og eignum miðað við lokadag tímabilsins í DK:
- Viðskiptakröfur á lykil 7600, brotnar niður á kennitölu skuldunauts
- Lánardrottnar á lykil 9300, brotnir niður á kennitölu lánardrottins
- Aðrar stöður úr aðalbókinni á viðeigandi fjárhagslykla
Stöður má handslá eða lesa inn.
Sjá nánar: Upphafstöður skulda og eigna þegar byrjað í Reglu
5. Tengdu bankann
Sæktu um B2B-tengingu og innheimtuþjónustu hjá viðskiptabankanum þínum (Arion banka, Íslandsbanka eða Landsbankanum). Þá sendirðu kröfur, sækir bankafærslur og greiðir laun beint úr Reglu.
Sjá nánar: Bankatenging - Uppsetning og stillingar
6. Tengdu vefverslun og önnur kerfi (ef við á)
Regla tengist meðal annars:
- Vefverslunum: Shopify og WooCommerce
- Bókunarkerfum: Godo, Booking Factory og Infor HMS
- Greiðsluþjónustum: PEI, Netgíró, Aur, Handpoint, Rapyd, MyPos, Yay og fleirum
Sjá nánar: Kerfi sem tengjast Reglu
7. Settu upp laun (ef við á)
- Skráðu launþega undir Launakerfi > Viðhald skráa > Launþegar. Leiðbeiningar
- Skráðu lífeyrissjóði undir Launabókhald > Viðhald skráa > Lífeyrissjóðir / innheimtuaðilar. Leiðbeiningar
- Skráðu stéttarfélög undir Launabókhald > Viðhald skráa > Stéttarfélög. Leiðbeiningar
Viltu fara dýpra? Upptaka af námskeiði í launakerfi Reglu
8. Berðu saman
Þegar allt er komið inn berðu stöður í Reglu saman við aðalbókina úr DK á sama degi. Ef tölurnar stemma er flutningnum lokið.
Þarftu aðstoð?
Flestir klára flutninginn sjálfir með leiðbeiningunum hér. Ef eitthvað stendur í þér aðstoðar þjónustuver Reglu:
- Sími: 520 1200 (kl. 9–16)
- Netfang: regla@regla.is
Svo eru námskeið í beinni á Zoom á tveggja mánaða fresti, auk upptaka af námskeiðum.
Algengar spurningar
Þarf ég að halda áfram með sömu reikningsnúmer og í DK?
Nei, það er ekki nauðsynlegt að byrja á næsta númeri á eftir síðasta reikningi úr DK. Hins vegar þarf númeraröðin í Reglu að vera samfelld eftir að fyrsti reikningurinn hefur verið gefinn út. Ef þú vilt byrja á öðru númeri en 1 þarf að stilla það áður en fyrsti reikningurinn er gefinn út.
Hvað verður um eldri gögn í DK?
Sæktu afrit af aðalbók, reikningum og launaseðlum úr DK áður en þú segir upp áskriftinni.
Getur bókhaldsstofan mín fengið aðgang?
Já. Notendur eru ótakmarkaðir í Reglu, svo bókhaldsstofan getur fengið sinn eigin aðgang að fyrirtækinu þínu.
Hvað kostar Regla?
Allir pakkar eru fríir í 30 daga. Notendur eru ótakmarkaðir og ekkert hlutfall er tekið af veltu. Sjá verðskrá Reglu.
Athugasemdir
0 comments
Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.