Fjöldabreyting gerir þér kleift að breyta mörgum vörum í einu í töflu sem hegðar sér líkt og Excel — í stað þess að opna hverja vöru fyrir sig. Þú getur breytt verðum, vöruflokkum, birgjum, stöðu, staðsetningu og magni á lager, afritað gildi milli raða og límt gögn beint úr Excel.
Hvar er fjöldabreyting?
Fjöldabreyting er í nýja vörulistanum, undir Sölukerfi > Skráning og viðhald > Vörur.
Sé vörulistinn hjá þér í eldra útliti smellirðu á Skipta yfir í nýja útlitið efst á síðunni.
1. Veldu vörurnar
Leitaðu að þeim vörum sem þú vilt breyta — til dæmis með því að slá inn hluta af vöruheiti eða vörunúmeri í leitarreitinn og ýta á Enter.
Hakaðu síðan við vörurnar í listanum, eða hakaðu í kassann í dálkahausnum til að velja allar vörur sem leitin skilaði. Þegar að minnsta kosti ein vara er valin birtist aðgerðaröð fyrir ofan listann sem sýnir hversu margar vörur eru valdar.
Smelltu á Fjöldabreyting. Talan í sviga sýnir hversu mörgum vörum þú ert að fara að breyta.
2. Taflan
Vörurnar opnast í töflu þar sem hver röð er ein vara og hver dálkur einn reitur sem má breyta.
- Vöruheiti er fasti dálkurinn lengst til vinstri. Hann sýnir vöruheiti og vörunúmer og fylgir með þegar þú flettir til hægri. Vöruheitinu er ekki breytt hér — því er breytt á vörunni sjálfri.
- Dálkar merktir með stjörnu (*) — Verð án vsk, Verð með vsk og Vsk — eru samtengdir. Breytir þú einum reiknast hinir sjálfkrafa.
- Lengst til hægri eru dálkar fyrir magn eftir staðsetningu, einn fyrir hvert lager.
- Fleiri vörur hlaðast inn sjálfkrafa þegar þú flettir niður, svo þú getur valið stóran hóp án þess að bíða.
3. Breyttu reitunum
Smelltu á reit og byrjaðu að skrifa, eða ýttu á Enter eða F2 til að opna hann til breytinga. Enter staðfestir breytinguna og færir valið niður í næstu röð; Esc hættir við hana.
Sumir reitir eru fellilistar — til dæmis Staða, Vöruflokkur, Vsk og Birgir. Þar velurðu úr þeim gildum sem þegar eru til.
Breyttir reitir eru gulmerktir og sýna gamla gildið → nýja gildið, svo þú sérð alltaf hverju þú hefur breytt áður en þú vistar. Á myndinni hér að neðan var verði breytt á þremur vörum. Í efstu röðinni var Verð án vsk breytt úr 1.400 í 1.540 og Verð með vsk reiknaðist sjálfkrafa úr 1.736 í 1.910.
Ekkert er vistað fyrr en þú smellir á Vista. Þangað til eru breytingarnar aðeins á skjánum og þú getur afturkallað þær.
4. Veldu hvaða dálka þú sérð
Smelltu á Breyta dálkum til að opna dálkalistann. Þar getur þú:
- kveikt og slökkt á dálkum með augntákninu,
- leitað að dálki í reitnum Leita í dálkum,
- og raðað dálkunum með því að draga þá til með handfanginu vinstra megin.
Regla man valið þitt — dálkarnir og röð þeirra eru eins næst þegar þú opnar fjöldabreytingu.
Neðst í dálkalistanum eru dálkar fyrir Leyfa afslátt, Leyfa að yfirrita verð, Hámarks afsláttur (%) og Er vara í birgðabókhaldi — stillingar sem oft er hentugt að breyta á mörgum vörum í einu. Þrjár þeirra eru hakreitir í töflunni; Hámarks afsláttur (%) tekur tölu frá 0 til 100. Eins og aðrir reitir er hak aðeins óvistuð breyting þangað til þú smellir á Vista.
Þar undir, í hópnum Magn eftir staðsetningu, eru lagerdálkarnir. Staðsetningar sem eiga birgðir í völdu vörunum eru sýndar sjálfkrafa; hinar getur þú kveikt á sjálf/ur.
5. Afritaðu, límdu og fylltu niður
- Ctrl+C og Ctrl+V afrita og líma. Þú getur límt beint úr Excel — merktu svæði í Excel, afritaðu það og límdu í töfluna.
- Dragðu bláa punktinn í neðra hægra horni valins reits til að afrita gildið hans niður í næstu raðir.
- Haltu Shift niðri með örvatökkunum til að stækka valda svæðið.
Gildum sem passa ekki í dálkinn er hafnað við límingu og Regla segir þér hversu mörgum var hafnað.
6. Flýtilyklar
Smelltu á spurningarmerkið í tækjastikunni til að sjá alla flýtilykla.
7. Afturkalla og endurtaka
Örvarnar í tækjastikunni afturkalla (Ctrl+Z) og endurtaka (Ctrl+Y) breytingar. Þær birtast þegar þú hefur gert fyrstu breytinguna.
8. Vistaðu
Smelltu á Vista. Talan í sviga sýnir hversu margar vörur hafa óvistaðar breytingar.
Gangi vistun upp fær þú staðfestingu neðst á skjánum og heldur áfram í töflunni — hún lokast ekki.
Ef eitthvað fer úrskeiðis:
- Reitir með ógildum gildum eru rauðmerktir og Vista er óvirkt þangað til þú lagfærir þá.
- Mistakist vistun á einstökum vörum birtist listi yfir þær með skýringu. Vörurnar sem vistuðust halda nýju gildunum og þær sem mistókust eru enn óvistaðar, svo þú getur lagfært og reynt aftur.
Gott að vita
- Óvistaðar breytingar. Reynir þú að fara út úr fjöldabreytingu — eða loka vafraflipanum — með óvistaðar breytingar spyr Regla hvort þú viljir halda áfram. Breytingar sem eru ekki vistaðar glatast.
- Afbrigði. Afbrigði birtast undir móðurvörunni. Verði og staðsetningu má breyta á afbrigðinu sjálfu, en vöruflokkum, stöðu og stillingunum að ofan er stýrt á móðurvörunni.
- Kostnaðarverð sést aðeins ef þú hefur heimild til að sjá kostnaðarverð.
- Magn á lager. Breyting á magni er skráð sem birgðaleiðrétting með rekjanlegri færslu — talan er ekki einfaldlega yfirskrifuð.
- Vilt þú aðeins bæta vörum í vöruflokk er fljótlegra að nota hnappinn Flokkar á vörulistanum.
Þarftu í staðinn að uppfæra verð með Excel-skrá og innflutningi? Sjá greinina Uppfæra verð á mörgum vörum.
Athugasemdir
0 comments