Launþegaflokkar og forgangur reglna í launabrú

Reglur fyrir launabrú hafa fengið tvær nýjar viðbætur: launþegaflokka og forgang reglna.

  • Launþegaflokkar — nú er hægt að flokka launþega í hópa (t.d. „Nemar“ eða „Sumarstarfsmenn“) og láta reglu aðeins gilda fyrir launþega í tilteknum flokki.
  • Forgangur reglna — þegar fleiri en ein regla á við sömu vinnustund ræður talan í reitnum Forgangur því hvaða regla vinnur. Hærri tala þýðir hærri forgang.

Áður þurfti að búa til eina reglu fyrir hvern launþega ef regla átti aðeins að gilda fyrir hluta starfsfólks. Nú dugar að setja launþegana í flokk og benda reglunni á flokkinn.

Að skrá launþega í flokka

Flokkar eru skráðir á launþegann sjálfan:

Launabókhald / Viðhald skráa / Launþegar

  1. Smelltu á línu viðkomandi launþega til að opna fyrir skráningu.
  2. Í reitnum Launþegaflokkar byrjarðu að skrifa heiti flokks.
    • Ef flokkurinn er til birtast tillögur um leið og þú skrifar — veldu úr listanum.
    • Ef flokkurinn er ekki til skrifarðu nafnið og ýtir á Enter — þá verður nýr flokkur til þegar launþeginn er vistaður. Nýr flokkur birtist með brotalínuramma þar til vistað er.
  3. Hver launþegi getur verið í engum, einum eða mörgum flokkum.
  4. Til að fjarlægja launþega úr flokki smellirðu á × á flokksmerkinu og vistar.

Athugið:

  • Flokkar eru sameiginlegir innan fyrirtækisins — flokkur sem er búinn til á einum launþega er í boði fyrir alla aðra.
  • Há- og lágstafir skipta ekki máli: ef flokkurinn „Nemar“ er til og þú skrifar „nemar“ tengist launþeginn flokknum sem fyrir er — enginn tvítekinn flokkur verður til.
  • Þótt launþegi sé fjarlægður úr flokki er flokkurinn sjálfur áfram til.

Að tengja reglu við launþegaflokk

Verkbókhald / Skráning og viðhald / Reglur fyrir launabrú

  1. Opnaðu regluna til breytingar.
  2. Í reitnum Launþegaflokkur byrjarðu að skrifa og velur flokk úr tillögulistanum. Hér er aðeins hægt að velja flokka sem þegar eru til — ef skrifað er heiti sem ekki er valið úr listanum stöðvast vistun með villunni „Launþegaflokkur fannst ekki“.
  3. Hver regla getur vísað á í mesta lagi einn flokk. Sé reiturinn tómur gildir reglan óháð flokkum, eins og áður.

Flokkssían vinnur með öðrum skilyrðum reglunnar (launþegi, verk, stéttarfélag) — öll virk skilyrði þurfa að eiga við svo reglan gildi. Launþegi sem er í mörgum flokkum uppfyllir reglu sem vísar á hvaða þeirra sem er.

Forgangur reglna

Þegar fleiri en ein regla á við sama launþega og sama tímabil ræður reiturinn Forgangur á reglunni úrslitum:

  • Hærri tala vinnur — regla með forgang 10 gengur framar reglu með forgang 5.
  • Sjálfgefið gildi er 0, svo eldri reglur haldast óbreyttar þar til forgangur er stilltur.
  • Ef tvær reglur sem báðar eiga við hafa sama forgang gildir sama uppröðun og áður (eftir launalið).

Dæmi: Almenn yfirvinnuregla gildir fyrir alla, en nemar eiga að fá annan launalið. Þá er nemareglan tengd flokknum „Nemar“ og fær forgang 10 á móti 0 hjá almennu reglunni — nemareglan vinnur fyrir nema, almenna reglan gildir fyrir alla aðra.

Reglulistinn

Reglulistinn sýnir nú tvo nýja dálka, Launþegaflokkur og Forgangur, og hægt er að raða eftir báðum. Textaleit í listanum leitar einnig í heitum launþegaflokka.

Takmarkanir í þessari útgáfu

  • Ekki er enn til sérstök umsjónarsíða fyrir launþegaflokka (endurnefna, eyða eða sjá yfirlit). Flokkar verða til í gegnum skráningarsíðu launþega. Umsjónarsíða er á dagskrá.
  • Ekki er hægt að eyða flokki sem regla vísar á — það er öryggisvörn svo regla brotni ekki óvart.
  • Hver regla getur aðeins vísað á einn flokk.
  • Fjöldaskráning launþega í flokka (margir í einu) er ekki í boði; flokkar eru skráðir á hvern launþega fyrir sig.
Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Athugasemdir

0 comments

Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.

Ert þú með fleiri spurningar?
Senda fyrirspurn
Deildu ef þér fannst þetta gagnlegt.