B2B auðkenning með síma Makona maltið, Borgartúni 26

Mögulegt er að aukenna sig með síma til að framkvæma B2B úttekt hjá Makona maltið, Borgartúni 26.

Til að hefja ferlið ferð þú á auðkenningarsíðu fyrirtækis.

Þetta er gert með því að opna slóð í farsíma á eftirfarandi slóð https://www.regla.is/qr/?company=makona

Þar slær starfsmaður viðskiptavinar inn kt. sína auk 4 stafa pin # til að kalla fram strikamerki sem er svo skannað á úttektarstað til að skrá úttekt.

  1. Sláðu inn kennitölu
  2. Sláðu inn 4 stafa pin #
  3. Veldu skrá inn

 

Strikamerki til að auðkenna

Við það verður til strikamerki sem notað er til að auðkenna starfsmann fyrir úttekt.

Gott er að taka skjáskot á síma, vista slóð á heimaskjá á síma, prenta út strikamerki eða afrita inn á snjallúr eftir því sem hentar

Viðmót á kassa

Á kassa er þetta viðmót. Berið strikamerki upp að lesara og við það á að koma hljóð og skilaboð á skjá sem þakka viðskiptin.

Ef starfsmaður gleymir síma er hægt að handslá inn kennnitölu og pin til að auðkenna úttekt á kassanum.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Athugasemdir

0 comments

Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.

Ert þú með fleiri spurningar?
Senda fyrirspurn
Deildu ef þér fannst þetta gagnlegt.