Pöntun með handtölvu - hjáleið

Eftirfaramdi er hjáleið til að koma pöntun af handtölvu í bakenda Reglu og þaðan í Excel.

VIð gerum ráð fyrir handtöluvu með innbyggðum skanna eins og Zebra TC22 en væri einnig hægt að nota síma og bluetooth skanna.

Hér er stutt myndband sem sýnir gerð reiknings í Regla POS á handtölvu sem er svo geymdur, geymdi reikningurinn er svo opnaður í skýja lausn Reglu og línurnar fluttar í iitöflureikni. 

Til að gera reikning á handtölvu 

  1. Opnaðu Regla POS appið á handtölvunni
  2. Skráðu þið inn með Reglu notanda
  3. Veldu Sala
  4. Skannaðu strikamerki

Til að skrá vöru á reikning

  1. Um leið og búið er að skanna kemur vara upp, veldu magn
  2. Sláðu inn magn og staðfestu val með Enter (hak merkið)
  3. Veldu staðfesta
  4. Endurtakið þar til allar vörur eru komnar á reikning

Geymið reikning til að koma honum í skýja lausn Reglu

  1. Þegar búið er að skrá allar vörur á reikning, veldu að vista
  2. Smelltu á Reikningaleit
  3. Veldu Geymdir til að skoða geymda reikninga og þá sést að skráður reikningur er nú geymdur
  4. Hægt er að opna reikninginn aftur og vista

Skráðu þig svo inn í skýjalausn Reglu á https://www.regla.is/fibs/Login.aspx

  1. Veldu Sölukerfi
  2. Veldu skráning og viðhald
  3. Veldu Reikningar
  1. Veldu Geymdir reikningar flipann

Finndu viðkomandi geymdan reikning

  1. Opnaðu reikninginn með því að velja blaðið með línunum fremst í línu reiknings

Afritaðu línur úr reikning með því að velja þær með mús frá 1 til 2

Afritaðu svo línurnar í töflureiknisskjal eins og Google Sheet, Microsoft Excel eða Libre Office

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Athugasemdir

0 comments

Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.

Ert þú með fleiri spurningar?
Senda fyrirspurn
Deildu ef þér fannst þetta gagnlegt.