Samþykktarfkerfið gerir notendum kleyft að samþykkja rafræna reikninga, handfærðar bókhaldsfærslur og innkaupareikninga með skilvirkum hætti.
Virkni skiptist í:
- Uppsetning og skilgreining notenda
- Sending rafrænna reikninga (2a), handfærðar bókhaldsfærslur (2b) og innkaupareikninga (2c) í samþykkt
- Yfirferð á samþykktum rafrænum reikningum, handfærðar bókhaldsfærslur og innkaupareikninga og bókun á þeim
- Yfirsýn yfir stöðu á reikningum í samþykkt í mælaborði
1. Uppsetningu og skilgreining notenda
Hér er stutt myndband sem sýnir uppsetningu og skilgreiningu á sjálfgefnum samþykkjanda og samþykkjendum út frá skipulagstré fyrirtækis
Til að stofna og og setja upp samþykkjanda
- Veldu Samþykktarkerfi
- Veldu Skráning og viðhald
- Veldu Stýringar
- Sjálgefinn samþykkjandi valinn (yfirleitt bókari eða framkvæmdastjóri)
- Sláðu inn nafn notanda sem þú vilt bæta við sem samþykkjanda
- Veldu Leita
- Veldu stofna
Til að stilla samþykkjanda
- Veldu Yfirsamþykkjanda út frá skipulagstré fyrirtækis
- Hægt er að afmarka á deild sem samþykkjandi er að samþykkja fyrir
- Hægt er að afmarka á Viðskiptavin sem samþykkjandi er að samþykkja reiknina frá
- Hægt er að skilgreina hámarksupphæð sem samþykkjandi má samþykkja
- Hægt er að skilgreina lágmarksupphæð sem samþykkjandi má samþykkja
- Hægt er að virkja og óvirkja samþykkjanda
2a. Rafrænir reikningar lesnir inn og sendir í samþykkt
Hér er stutt myndband sem sýnir innlestur, yfirferð, val á samþykkjanda og sending reikninga til samþykktar:
Til að lesa inn rafræna reikninga
- Veldu Bókhald
- Veldu Skráning færsla
- Vledu Sækja rafræna reikninga
Þegar búið er að lesa inn rafræna reikninga
- Þá er hægt að yfirfara hvern reikning og skoða reikning með því að smella á mynd fremst í línu
- Aftast í línu er samþykkjandi valin fyrir hvern reikning
- Til að velja reikninga og senda í samþykkt er smellt efst í dálkinn og við það veljast allir reikningar
- Veldu Senda í samþykkt til að senda alla valda reikninga í samþykkt
Samþykkjandi fer yfir reikninga og samþykkir
Hér er stutt myndband sem sýnir viðmót samþykkjanda og samþykkt
Til að fara yfir rafræna reikninga og samþykkja
- Veldu Samþykktarkerfi
- Veldu Ósamþykktir reikningar
- Til að sjá bara reikninga sem bíða innskráðs notanda, veldu Bara mín, en einng er hægt að sjá
- Allir reikningar í samþykkt
- Allar samþykktar færslur
- Allar færslur/reikn. sem búið er að hafna
- Veldu leita til að kalla fram reikninga fyrir gefna afmörkun, tímabil, fylgiskjals# og uphæð
- Smelltu á pappírsklemmu fremst í línu til að skoða reikning
- Smelltu á bók fremst í línu til að skoða samþykktarsögu
- Hakaðu við efst til að velja allar færslur
- Hægt er að bæta við athugasemd
- Veldu Samþykkja til að samþykkja valda reikninga
- Veldu Hafna til að Hafna valda reikninga
2b. Handfærð bókhaldsfærsla send í samþykkt
Hér er stutt myndband sem sýnir handfærða bókhaldsfærslu sem er send í samþykkt:
Til að senda handfærða bókhaldsfærslu í samþykkt
- Veldu Bókhald
- Veldu Skráning færsla
- Veldu Skráning
Handgerð færsla er skráð með því að
- Skrá Debet línu
- Skrá Kredit línu
- Velja samþykkjanda
- Velja Staðfesta
Við það er færsla komin í viðmót samþykkjanda Samþykktarkerfi / Skráning / Ósamþykktir reikningar
- Samþykkjandi veldur færslur til samþykktar
- Hægt er að skrifa athugasemd
- Til að samþykkja valdar færslur er valið Samþykkja
2c. Innkaupareikningar sendir í samþykkt
Hér er stutt myndband sem sýnir handfærðann innkaupareikning sem er sendur í samþykkt:
Til að senda handfærðann innkaupareikning í samþykkt:
- Veldu Bókhald
- Veldu Skráning færsla
- Veldu Innkaup
Þegar verið er að skrá línur í innnkaupareikning er hægt að velja samþykkjanda per línu.
Til að velja samþykkjanda
- Færðu þig lengst til hægri í línu
- Ef margar línu eru í reikning getur verið að það sé einnig þörf til að færa sig neðar á skjá
- Veldu réttan samþykkjnada fyrir línuna
- Staðfestu val með því að velja græna hakið
Til að senda í samþykkt er hægt að velja
- Veldu skrá birgðir og bóka til að gera það samhliða að senda í samþykkt (þegar reikningur er samþykktur bókast hann)
- Veldu Bóka reikning til að bóka án þess að skrá birgðir (þegar reikningur er samþykktur bókast hann)
3. Bókari fer yfir samþykkta reikninga og bókar
Hér er stutt myndband sem sýnir hvernig bókari bókar reikninga sem búið er að samþykkja:
Bókari getur skoðað alla samþykkta reikninga í samþykktarkerfinu með því að:
- Velja Samþykktarkerfi
- Veldu Ósamþykktir reikningar
- Veldu Allar samþykktar færslur
- Veldu frá dags fyrir tímabil
- Veldu til dags fyrir tímabil
- Veldu Leita til að kalla fram samþykktar færslur
Til að bóka samþykkta reikningar og færslur
- Veldu Bókhald
- Veldu Skráning færsla
- Veldu Skráning
Til að fara yfir og bóka færslur sem búið er að samþykkja
- Hægt er að skoða reikning með því að smella á pappírsklemmu
- Hægt er að breyta skráningu á færslu
- Hægt er að skoða samþykktarsögu
- Hægt er að sjá hver samþykkti færsluna
- Hægt er að sjá stöðu færslu en gult þýðir að hún sé villulaus og tilbúin til bókunar
4. Mælaborð sem sýnir stöðu reikninga í samþykkt
- Sýnir ósamþykkta reikninga eftir greiðsludegi út frá
- í samþykkt
- í bið
- hafnað
- Sýnir ósamþykkta reikninga eftir samþykkjendum
- Nöfn samþykkjenda
Athugasemdir
0 comments
Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.