Stofna starfsmann
Til að stofna starfsmann þarftu eftirfarandi upplýsingar:
- Kennitala
- Nafn
- GSM
- Tölvupóst
Skráðu þig inn á regla.is og veldu
Stjórnun / Viðhald skráa / Stafsmenn

Þar er starfsmaður stofnaður og úttekt heimiluð með því að fylla bara út eftirfarandi reiti:
- Kt.
- Nafn
- taka hakið úr við "Notandi kerfa"
- eyðið út "Notendanafn"
- GSM
- Netfang
- hakið við "Úttekt leyfð hjá völdum viðskiptamönnum"
- Úttektarkóði (má vera hvaða 4 stafa pin sem er en flestir velja 1234)
Vistaðu skráninguna með því að velja "Skrá"

Óvirkja starfsmann
Ef starfsmaður hættir eða hefur ekki heimild lengur til að setja í reikning þá þarf að óvirkja viðkomandi.
Skráðu þig inn á regla.is og veldu
Stjórnun / Viðhald skráa / Stafsmenn

Finndu starfsmann sem á að óvirkja
a. ritaðu nafn og veldu Leita
b. veldu starfsmann
c. veldu Eyða

Staðfestu að þú viljir Eyða (Ath. aðeins er hægt að óvirkja þar sem færslur eru á viðkomandi starfsmanni)

Aðgerðin að Eyða (óvirkja) tekur smá stund þar sem það þarf að óvirkja starfsmann í öllum kerfiseiningum og töflum í Reglu.

Þegar aðgerðin klárast þá kemur fram að ekki tókst að eyða heldur að starfsmanni var breytt í óvirk.

Ef þú vilt síðan sjá hverjir eru óvirkir í kerfinu td. til að virkja aftur þá velur þú að haka við Sína óvirka starfsmenn

Þá bætast við í rauðu letri þeir starfsmenn sem eru óvirkir í kefinu þegar Leit er framkvæmd.

Athugasemdir
0 comments
Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.