Hvernig endurset ég lykilorð fyrir bankatengingu v/innlesturs á færslum?

Ef lykilorði hefur verið gleymt þarf að byrja á því að hafa samband við þjónustufulltrúa viðkomandi banka og biðja um nýtt lykilorð fyrir B2B tengingu. Þegar það er komið þarf að endursetja lykilorðið í Reglu. Ef slegið var inn vitlaust lykilorð þá er nóg að endursetja lykilorðið.

Endursetja lykilorð

Farðu undir Bókhald / Stjórnun / Skilgreining bankareikninga.

  1. Smelltu á réttu skilgreiningu úr listanu
  2. Smelltu á "Endursetja lykilorð".

ATH! Þegar smellt er á "Endursetja lykilorð" kemur engin melding heldur mun lykilorðið sem sett var inn áður þurrkast út. Við næstu aðgerð, sem tengist bankanum, t.d. lesa inn færslur í banka, opnast glugginn þar sem sett er inn notendanafnið og nýja lykilorðið frá bankanum.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Athugasemdir

0 comments

Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.

Ert þú með fleiri spurningar?
Senda fyrirspurn
Deildu ef þér fannst þetta gagnlegt.