Hér er yfirlit yfir skrefin sem þarf til að komast af stað með Reglu. Fylgdu þeim í röð — hvert skref vísar á nánari leiðbeiningar ef þú vilt kafa dýpra.
- Lærðu á Reglu / nánar
- Stofnaðu aðgang / nánar
- Fylltu út fyrirtækjaupplýsingar / nánar
- Sæktu um bankatengingu og innheimtuþjónustu (valkvætt) / nánar
- Sæktu um rafræna reikninga (valkvætt) / nánar
- Sæktu um tengingu við Þjóðskrá (valkvætt) / nánar
- Stofnaðu starsmenn og settu aðgangsheimildir / nánar
-
Stilltu útliti reikninga / nánar
1. Lærðu á Reglu
Þú hefur þrjár leiðir til að ná tökum á kerfinu
- Námskeið — bæði fjarfundir í beinni og upptökur.
- Skjölun — ítarleg, aðgengileg bæði inni í Reglu og á hjalp.regla.is.
- Þjónustuver — innifalið hjá Reglu. Sendu póst á regla@regla.is eða hringdu í 520 1200.
2. Stofnaðu aðganginn þinn
1. Farðu á regla.is og smelltu á Nýskráning. Fylltu inn umbeðnar upplýsingar.
2. Þú færð kóða sendan í tölvupóst. Sláðu hann inn í Reglu og smelltu á Næst.
3. Veldu þér notendanafn og lykilorð.
4. Fylltu inn upplýsingar um fyrirtækið.
5. Hakaðu við Iceland Regla — það er venjulega rétta viðmótið. Ef þú ert með húsfélag? Veldu þá Húsfélag í staðinn.
Veldu þær einingar sem þú vilt nota og smelltu á Stofna aðgang.
Ábending: það sakar ekki að velja fleiri einingar en þú þarft strax um sinn. Reikningur myndast aðeins fyrir einingar sem eru notaðar.
Aðgangurinn er kominn. Næst klárar þú fyrirtækjaupplýsingarnar.
Sjáðu nánari leiðbeiningar um að stofna aðgang →
3. Fylltu út fyrirtækjaupplýsingar
Farðu í Stjórnun > Viðhald skráa > Fyrirtækið og fylltu út fyrirtækjaspjaldið. Þessar upplýsingar nýtast meðal annars á reikningunum þínum, svo hafðu þær réttar frá byrjun.

Sjáðu hvaða reiti þarf að fylla út í fyrirtækjaspjaldinu→
4. Sæktu um bankatengingu og innheimtuþjónustu (valkvætt)
Bankatenging (B2B-tenging) gerir þér kleift að senda kröfur og sækja bankafærslur beint í gegnum Reglu.
1. Hafðu samband við þjónustufulltrúa bankans þíns og sæktu um B2B-tengingu og innheimtuþjónustu.
2. Bankinn sendir þér notendanafn og lykilorð. Skráðu þau inn í Reglu og vistaðu þegar þú sendir kröfur í fyrsta sinn.
3. Fylgdu nánari skrefum til að stilla upp bankareikning og kröfur og til að merkja viðskiptamenn.
Sjáðu hvernig á að setja upp bankatengingu→
5. Sæktu um rafræna reikninga (valkvætt)
Til að sækja um rafræna reikninga velur þúStjórnun / Viðhald skráa / Sækja um rafræna reikninga
1. Veldu skeytamiðlara.
2. Smelltu á Senda beiðni.
3. Smelltu á Senda og staðfesta beiðni.
Sjáðu nánari leiðbeiningar um rafræna reikninga →
6. Sæktu um tengingu við Þjóðskrá (valkvætt)
Farðu í Stjórnun > Viðhald skráa > Sækja um tengingu við þjóðskrá.
1. Smelltu á Senda beiðni til Ferlis.
2. Smelltu á Senda og staðfesta beiðni.

Sjáðu nánari leiðbeiningar um tengingu við Þjóðskrá →
7. Stofnaðu starfsmenn og settu aðgangsheimildir
1. Stofnaðu starfsmann.

2. Úthlutaðu honum aðgangsheimildum eftir því hvaða hlutverki hann gegnir.
Sjáðu hvernig á að stofna starfsmann → · Sjáðu hvernig aðgangsstýringar virka →
8. Stilltu útlit reikninga
Þú getur lagað haus reikninganna að fyrirtækinu þínu:
- Settu inn eigið vörumerki.
- Birtu upplýsingar um fyrirtækið. Þær koma sjálfkrafa úr Stjórnun > Viðhald skráa > Fyrirtækið.
- Bættu við eigin texta efst og neðst á reikningana.

2. Upplýsingar um fyrirtækið notast við þær upplýsingar sem er gefnar undir Stjórnun / Viðhald skráa / Fyrirtækið

3. Einnig er hægt að setja annan texta á haus og neðst á reikninga


Athugasemdir
0 comments