Stimpilklukka

Starfsmenn geta skráð tímana sína í gegnum kassakerfi Reglu og þannig létt launagreiðendum lífið með auðveldara utanumhald um tíma og laun. 

Launagreiðendur geta svo fært tímana yfir í Launakerfi Reglu. Aðra skjölun launakerfis Reglu má skoða hér.

Þessi grein fer yfir uppsetningu á stimpilklukku virkni í Reglu. 

1. Stofna viðeigandi verk

Til að geta notað stimpilklukku virkni Reglu þarf viðkomandi fyrirtæki að vera með Verkbókhald. Sjá verðskrá fyrir verkbókhald og launakerfi  hér.

Byrjum á að fara á Regla.is -> Verkbókhald -> Skráning og viðhald -> Verk. 

Ýtum á stofna til að fá eftirfarandi glugga til hægri:


 

Nokkrir hlutir sem þarf að hafa í huga við stofnun verks. 

1. Greiðandi á að vera fyrirtækið sjálft sem greiðir launin. Ef fyrirtækið er ekki skráð er hægt að fara í Sölukerfi -> Viðskiptamenn og stofna viðskiptamann þar með nafni á fyrirtæki og kennitölu.  

2. Heiti verks er ekki heilagt en sniðugt er að skíra verkið einhvað eins og "Stimpilklukka" eða "Tímaskráning"

3. Hægt er að skrá Deild á verkið. Starfsmenn geta samt stimplað sig inn á verkið þrátt fyrir að tilheyra annarri deild. Sá reitur er þ.a.l ekki mikilvægur fyrir stimpilklukku verkið.

4. Ábyrgðarmaður er skráður Starfsmaður í reglu undir Stjórnun -> Viðhald Skráa -> Starfsmenn. Nafn á þeim starfsmanni getur einnig verið einfaldlega nafnið á fyrirtækinu og kennitala. 

5. Mikilvægt er að Staða verksins sé Í vinnslu. 

 

Næst er að ýta á Skrá til að stofna verkið. 

Þá á eftirfarandi að sjást:

Skráning starfsfólks

Til að hægt sé að stimpla sig inn í gegnum kassakerfið þarf starfsfólkið að vera skráð í Reglu undir Stjórnun -> Viðhald Skráa -> Starfsmenn
 

Ýtt er á Stofna til að skrá nýjan starfsmann og þá birtist eftirfarandi viðmót.  



 

1. Ef starfsmaður á ekki að geta skráð sig inn á Reglu.is á að passa að Notandi kerfa sé afhakað.

2. Ef Notandi kerfa er afhakað á starfsmaður ekki að hafa notendanafn. 

3. Passa þarf að hakað sé við Stimpilklukka

4. Pinnið sem sett er í Pin í kassakerfi er það pin sem starfsmenn nota til að stimpla sig inn. Ef fólk kýs að nota ekki pin skal skilja þennan reit eftir auðan. 

Næst er að ýta á Skrá og virkja tímastimplun í kassakerfinu. 

 

Virkja tímastimplun í kassakerfinu

Það eina sem nú er eftir er að virkja tímastimplun í kassakerfinu. Þegar það er gert koma þeir starfsmenn sem skráðir eru með Stimpilklukku hakinu sjálfkrafa inn. 

Þá þarf að fara í Stjórnun -> Skráning og Viðhald -> Útstöðvar. 

Þar er hægt að sjá lista yfir öll kassakerfi sem fyrirtæki er með og stillingar fyrir þau. 

Finna skal viðeigandi kassa og smella á línuna. 

Þegar það er gert á nafnið á kassanum að sjást hægra megin á skjánum

Ýttu á Edit hjá ReglaProperties.ini og bættu við eftirfarandi línu neðst í skjalið:

TimeClockForEmployees : true

Næst er að ýta á Save og loka og opna ReglaPOS, kassakerfinu. 

Innstimplun 

Starfsmenn skrá sig svo inn með því að ýta á klukkuna í kassakerfinu. 


 

Velja svo starfsmann. 

Velja stimpilklukkuverkið sem við bjuggum til áðan og stimpla sig inn. 


 

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Athugasemdir

0 comments

Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.

Ert þú með fleiri spurningar?
Senda fyrirspurn
Deildu ef þér fannst þetta gagnlegt.