Vefverslunartenging - FAQ

Vörutenging

  • Afhverju eru vörur í Reglu og vefverslun ekki að samstillast?

    Líklegast eru vörurnar ekki tengdar eða stillingar rangar. Gakktu úr skugga um að vörur eru tengdar í gegnum Sölukerfi / Skráning og viðhald / Vörur. Þar er hægt að sjá hvort vara er tengd í vefverslun. Ef vara er tengd geturu smellt á "Skoða" hlekkinn. Regla sendir þig á vöruna sem varan er tengd við. 

    Ef það er ekki málið gætu stillingar verið rangar. Stillingar eru aðgengilegar undir Sölukerfi / Stjórnun / Vefverslun. Skoðaðu atburðir og samstilling.

    Uppsetning vefverslunartengingar er lokið og vörurnar eru tengdar. Afhverju eru birgðir/verð ekki það sama?

    Vefverslunartengingin er rauntímatenging. Hlutir uppfærast aðeins þegar þeim er breytt. Að tengja vörur breytir þeim ekki og því gætu þær enn verið í ósamræmi. Farðu undir Sölukerfi / Stjórnun / Vefverslun og síðan í Samstillingu. Þar er hægt að samstilla allt sem er í ósamræmi.

    Ég er að haka í vefverslunarhakið á vöruspjaldi. Afhverju er varan ekki að ná að tengjast?

    Regla reynir að finna samsvarandi vöru fyrst í vefverslun. Samsvarandi vara er vara sem er með sama vörunúmer og sama vörugerð (fjölbreytt/einföld). Þar sem Shopify og WooCommerce haga sér öðruvísi með þessi eigindi leitar Regla á mismunandi hátt.

    • Shopify, einföld vara: Regla leitar að vörunúmerinu og ef það koma fleiri en ein vara býr Regla til nýja. Annars er eina varan sem passar tengd. Gott að hafa í huga að Regla breytir vörunni í einfalda vöru ef hún er önnur gerð.
    • Shopify, fjölbreytt vara: Regla leitar að vörunúmerinu á undirvörunum. Ef vara í Shopify passar nákvæmlega við Reglu vöruna tengir Regla hana.
    • WooCommerce, einföld vara: Regla leitar að vörunúmerinu og ef varan er til og einföld vara þá tengir Regla hana. Ef varan er ekki einföld vara þá eyðir Regla vörunúmerinu á fundnu vörunni og býr til nýja.
    • WooCommerce, fjölbreytt vara: Regla leitar að vörunúmerinu á yfirvörunni. Ef varan er til sem yfirvara reynir Regla að tengja allar undirvörur sem hún getur við yfirvöruna. Ef varan er einföld þá breytir Regla henni í fjölbreytta vöru. Ef varan er undirvara þá eyðir Regla vörunúmerinu af henni og býr til nýja.
  • Hvernig er best að endurtengja vörur?

    Hraðasta leiðin er að finna vöruna undir Sölukerfi / Skráning og viðhald / Vörur, aftengja hana, uppfæra og síðan skoða vöruna í vefverslun til að sjá hvort hún sé ekki í lagi. Ef það er staðfest þá er málið að tengja hana aftur. Annars er gott að fara undir Sölukerfi / Stjórnun / Vefverslun og Frumstilla vörur. Þar er oft lýst auka vandamálum.

    Til að finna villutengingar er gott að kíkja í Samstillingu á vörum undir Sölukerfi / Stjórnun / Vefverslun.

  • Hver er munurinn á verð og afslættir í Samstillingu?

    Verð breytir aðeins grunnverði á vörum, hvort sem það er fram eða til baka. Ef vara er á afslætti og verð samstillt frá Reglu þar sem er enginn afsláttur mun varan samt haldast áfram á afslætti en með annað grunnverð. Til þess að kveikja/slökkva á afslættum þarf að nota Afslættir hakið í samstillingu.

  • Síurnar í Frumstillingu og Samstillingu hafa sér furðulega þegar ekkert er síað

    Þegar ekkert er síað í þessum viðmótum ákveður Regla að sýna vörur sem ættu að skipta máli í viðmótunum, t.d. er ekki ástæða að sýna tengdar vörur í Frumstillingu því Frumstilling snýst um að tengja ótengdar vörur. Sama með Samstillingu og nú þegar samstilltar vörur.

    Ætti ég að samstilla vöruflokka á milli Reglu og vefverslun?

    Við mælum ekki með því, en það gæti hentað sumum. Vöruflokkar í Reglu eru aðallega til að flokka betur fyrir notanda fyrirtælisins og þægilegrar uppflettingu í kassakerfinu. Vöruflokkar í vefverlun eru til þess að selja kúnnum vörur og eru því ólíklega settir upp á góðan hátt fyrir bókhaldskerfi.

    Hvernig flæðir vörulýsing á milli Reglu og vefverslun?

Shopify:

  •  
    • Einföld vara: Regla Löng lýsing ⇐⇒ Description Shopify
    • Yfirvara vara: Regla Löng lýsing ⇐⇒ Description Shopify

WooCommerce:

  •  
    • Einföld vara: Regla Löng lýsing ⇐⇒ Description WooCommerce
    • Einföld vara: Regla Löng lýsing ⇐⇒ Short description WooCommerce
    • Yfirvara:  Regla Löng lýsing ⇐⇒ Description WooCommerce
    • Yfirvara: Regla Löng lýsing ⇐⇒ Short description WooCommerce
    • Undirvara: Regla Löng lýsing ⇐⇒ Description WooCommerce

Vefverslunarpantanir

  • Pantanir frá vefverlun innihalda vörulínur sem eru ekki tengdar við Reglu. Afhverju?

    Þegar Regla tekur á móti pöntun frá vefverslun skoðar Regla fyrst hvort seldu vörurnar eru tengdar. Ef svo er ekki grípur Regla í vöru sem er með sama vörunúmer. Ef það virkar heldur ekki er gripið í Óþekktu vöruna sem var skilgreind í uppsetningu vefverslunartengingu.

  • Innheimtumáti á vefverslunarreikning er Óþekkt en það var ekki greitt í gegnum greiðslugátt

    Regla hlustar á innheimtumáta frá vefverslun og reynir að samstilla þá við eigin innheimtumáta. Hvað vefverslun sendir eru mismunandi á milli útgáfu og stundum eru ný skilaboð sem ekki er búið að gera ráð fyrir. Endilega sendið á okkur(regla@regla.is) þegar það kemur fyrir.

Stillingar

  • Afhverju eru stillingar á vefverslunartengingu á tveimur stöðum?

    Stillingarnar undir Sölukerfi / Stjórnun / Vefverslun eru almennar stillingar sem eru nógu sjálflýsandi að notandi ætti að geta stillt þær með góða hugmynd hvað þær eru að gera.

    Stillingarnar undir Sölukerfi / Stjórnun / Stýringar eru stillingar sem hafa verið sérhæfðar sérstökum kerfum og mælt er með því að tala við okkur um hvort stillingar þar henti þínu kerfi.

Annað

  • Afhverju er ekki app/plug-in í vefverslun að virka með Reglu?

    Regla gerir ráð fyrir grunnvefverslunarkerfi. Allar viðbætur gætu breytt grunnkerfinu og því eyðilagt tenginguna. Setjið upp þessar viðbætur á eigin ábyrgð!

  • Afhverju tekur allt vefverslunartengt svona langan tíma?

    Samstilling og Frumstilling sækja allar vörur úr vefverslun. Þar af leiðandi: Því fleiri vörur, því lengri biðtími. Allur biðtími er Regla að bíða eftir svörum frá vefverslunum og stundum eru mikið af gögnum að fara á milli.

    Gott að hafa í huga fyrir WooCommerce vefverslunartengingar að WooCommerce hraði er oft tengdur hýsingaraðila.

 
Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Athugasemdir

0 comments

Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.

Ert þú með fleiri spurningar?
Senda fyrirspurn
Deildu ef þér fannst þetta gagnlegt.