Notandinn sem er tengdur við vefverslunartenginguna er tengdur við allar sjálfvirkar færslur sem vefverslunartengingin gerir.
Þannig ef það er búinn til sér notandi fyrir vefverslunartenginguna mun það auka rekjanleika á öllum aðgerðum sem vefverslun framkvæmir.
Til að búa til þennan notanda þarf að fara undir Stjórnun / Viðhald skráa / Starfsmenn
- Smelltu á "Stofna"
- Sláðu inn kennitölu - ef kennitala byrjar á 99 er hún ekki vartöluprófuð
- Sláðu inn nafn - gott að hafa eitthvað sem minnir á vefverslun
- Notendanafn verður sjálfkrafa til þegar nafn hefur verið sett inn
- Veldu deild
- Sláðu inn GSM númer
- Sláðu inn netfang
- Smelltu á "Skrá"

Þegar búið er að skrá notandann þá mun annar gluggi opnast þar sem velja þarf hlutverk.
Veldu þessi hlutverk og smelltu á "Stofna":
- Sölukerfi / Skráning og viðhald
- Sölukerfi / Stjórnun
Þegar búið er að skrá notandann ætti að berast tölvupóstur með notandanafni og lykilorði.
Næst þarf því að fara undir Sölukerfi / Stjórnun / Vefverslun og skrá upplýsingarnar undir "Notandi Reglu".
ATH! Við mælum með að lykilorði sé breytt fyrir vefverslunarnotandann og notað sé öruggt lykilorð.![]()
Athugasemdir
0 comments
Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.