Flytja inn skrá - Vörukaup
Hægt er að flytja inn skrár í Reglu með einföldum innlestri.
Þessi aðgerð er notuð t.d. þegar verið er að koma gögnum inn í Reglu úr öðru kerfi.
Þau gögn sem oftast eru flutt inn, eru viðskiptamannaskrá, vörur, birgðir, strikamerki og fl.
Nota má sniðmát sem til eru inni í Handbækur og Stillingar fyrir innlestur inn í Reglu en það er líka hægt að byggja upp sitt eigið excel skjal.
ATH að mjög mikilvægt er að færa gögnin rétt inn í sniðmátin og vista í tölvunni, áður en skráin er lesin inn.
Flytja inn skrá:
Færsla þarf að vera samansett af eftirfarandi svæðum og röð:
1.Dagsetning, 2.Númer reiknings, 3.Vörunúmer, 4.Vörunúmer birgja, 5.Vöruheiti, 6.Vöruflokkur, 7.Birgi, 8.Verð, 9.Kostnaður, 10.Vsk, 11.Magn
Kerfið leyfir að fyrsta línan innihaldi dálkaheiti ef hakað er við „Skrá inniheldur hauslínu“.
Öll gögnin sem flutt eru inn í kerfið fara í gegnum sams konar villuleit og þau gögn sem slegin eru beint inn í kerfið, þess vegna gilda sömu reglur um öll svæðin.