Flytja inn skrá - Flokkun viðskiptavina
Hægt er að flytja inn skrár í Reglu með einföldum innlestri.
Þessi aðgerð er notuð t.d. þegar verið er að koma gögnum inn í Reglu úr öðru kerfi.
Þau gögn sem oftast eru flutt inn, eru viðskiptamannaskrá, vörur, birgðir, strikamerki og fl.
Nota má sniðmát sem til eru inni í Handbækur og Stillingar fyrir innlestur inn í Reglu en það er líka hægt að byggja upp sitt eigið excel skjal.
ATH að mjög mikilvægt er að færa gögnin rétt inn í sniðmátin og vista í tölvunni, áður en skráin er lesin inn.
Flytja inn skrá:
![clip0106](https://www.regla.is/fibs/help-is/clip0106.png)
![](http://d33v4339jhl8k0.cloudfront.net/docs/assets/6086933694b4617b3686a4cb/images/6222288daf6f8700f6dabcd4/file-ghjx3EnXYg.png)
Færsla þarf að vera samansett af eftirfarandi svæðum og röð:
1.Kennitala viðskiptamanns
2.Kóði viðskiptamannaflokks
Kerfið leyfir að fyrsta línan innihaldi dálkaheiti ef hakað er við „Skrá inniheldur hauslínu“.
Öll gögnin sem flutt eru inn í kerfið fara í gegnum sams konar villuleit og þau gögn sem slegin eru beint inn í kerfið, þess vegna gilda sömu reglur um öll svæðin.
Bæði viðskiptamaður (kennitala) og viðskiptamannaflokkur (kóði) þurfa að vera til í kerfinu fyrir.