Flytja inn skrá - Vörutalning
Hægt er að flytja inn skrár í Reglu með einföldum innlestri.
Þessi aðgerð er notuð t.d. þegar verið er að koma gögnum inn í Reglu úr öðru kerfi.
Þau gögn sem oftast eru flutt inn, eru viðskiptamannaskrá, vörur, birgðir, strikamerki og fl.
Nota má sniðmát sem til eru inni í Handbækur og Stillingar fyrir innlestur inn í Reglu en það er líka hægt að byggja upp sitt eigið excel skjal.
ATH að mjög mikilvægt er að færa gögnin rétt inn í sniðmátin og vista í tölvunni, áður en skráin er lesin inn.
Flytja inn skrá:
Færsla þarf að vera samansett af eftirfarandi svæðum og röð:
1.Strikamerki
2.Magn (Þessi dálkur er valkvæmur)
Kerfið leyfir að fyrsta línan innihaldi dálkaheiti ef hakað er við „Skrá inniheldur hauslínu“.
Öll gögnin sem flutt eru inn í kerfið fara í gegnum sams konar villuleit og þau gögn sem slegin eru beint inn í kerfið, þess vegna gilda sömu reglur um öll svæðin.
Strikamerki fyrir vöruna þurfa að vera til í kerfinu fyrir.
Dæmi um nokkrar línur væri:
9780596529307
9781449320416
Eða
9780596529307;2
9781449320416;3
Vörutalning - (Vörunúmer)
Færsla þarf að vera samansett af eftirfarandi svæðum og röð:
1.Vörunúmer
2.Magn (Þessi dálkur er valkvæmur)
Kerfið leyfir að fyrsta línan innihaldi dálkaheiti ef hakað er við „Skrá inniheldur hauslínu“.
Öll gögnin sem flutt eru inn í kerfið fara í gegnum sams konar villuleit og þau gögn sem slegin eru beint inn í kerfið, þess vegna gilda sömu reglur um öll svæðin.
Vörunúmer fyrir vöruna þurfa að vera til í kerfinu fyrir.
Dæmi um nokkrar línur væri:
45009781 Eða 4500;29781;3