Strikamerkjaprentun
Í Sölu og Birgðakerfi Reglu er hægt að prenta út strikamerkjamiða á límmiða eða hillumiða. Takki til þess að opna þann glugga er staðsettur neðst á spjaldi valinnar vöru. Strikamerkjaprentun byggir á ZPL(Zebra Programming Language) sem getur t.d. prentað myndir, QR kóða og aðra grafík. Myndir og grafík þurfa þó að vera hæf til birtingar í tvítóna svarthvítu þar sem prentararnir notast ekki við blek.

Til þess að hægt sé að byrja að prenta þarf að hafa Zebra prentara uppsettann við tölvuna og einnig Browser Print hugbúnað frá Zebra. Ef prentari er rétt uppsettur birtist hann í fellilista efst í hægra horni gluggans og upplýsingar um hann þar fyrir neðan. Prentglugginn sýnir sýnishorn af því hvernig prentun gæti komið út, en til þess að fá sem nákvæmasta mynd af því er rétt að breyta breidd og hæð þannig að það passi við þann pappír sem er í prentaranum. ATH breiddar og hæðar innsláttarreitirnir hafa ekki áhrif á stærð prentunar heldur sýna eingöngu hvernig prentun kemur út á valinni stærð.